Íslenski boltinn

Peningarnir streyma frá UEFA og KSÍ til íslensku félaganna | Sjáið upphæðirnar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
FH og Valur fá fínan pening frá UEFA og KSÍ eins og fleiri íslensk lið.
FH og Valur fá fínan pening frá UEFA og KSÍ eins og fleiri íslensk lið. Vísir/Andri Marinó
Knattspyrnusamband Íslands hefur nú tekið ákvörðun um skiptingu framlaga frá UEFA og KSÍ til barna- og unglingastarfs aðildarfélaga KSÍ. Það er hægt að sjá upphæðirnar í frétt á heimasíðu KSÍ.

Evrópska knattspyrnusambandið, UEFA, hefur ákveðið, líkt og áður, að hluti af þeim tekjum sem sambandið hafði af Meistaradeild UEFA (Champions League) 2015/2016 skuli renna til félaga í öllum aðildarlöndum UEFA til eflingar knattspyrnu barna- og unglinga.  

Uppgjör vegna Meistaradeildarinnar sem lauk vorið 2016 hefur nú farið fram og fá íslensk félög um 56 milljónir króna í sinn hlut til barna- og unglingastarfs.  Samkvæmt ákvörðun UEFA skulu öll framlög vegna Meistaradeildar UEFA til barna – og unglingastarfs renna til félaga í efstu deild.  Framlag UEFA skiptist því á milli félaga í Pepsi-deild karla.

Stjórn KSÍ hefur samþykkt að leggja til um 51 milljónir króna til viðbótar til barna-og unglingastarfs sem skiptist á milli aðildarfélaga í öðrum deildum og utan deilda.

Samþykkt stjórnar KSÍ byggir á samráði við aðildarfélögin og almennri sátt um skiptingu fjármunanna.  Greiðslan til félaganna skal renna óskipt til eflingar knattspyrnu barna og unglinga frá yngstu iðkendum til og með 2. aldursflokks karla og kvenna.  Samtals er því framlag til barna- og unglingastarfs fyrir árið 2016 áætlað um 107 milljónir króna.

Liðin í Pepsi-deild karla frá 4.688.947, liðin í 1. deild fá 2.100.000, liðin í 2. deild 1.400.000 og önnur félög eina milljón. Það er hægt að lesa meira um hvað liggur að baki hér.

Eftirfarandi tafla sýnir greiðslur í milljónum króna frá UEFA vegna Meistaradeildarinnar 2015/2016 og frá KSÍ til barna- og unglingastarfs aðildarfélaga KSÍ.  Styrkurinn kemur til greiðslu 1. nóvember 2016.

Pepsi-deild karla     

Breiðablik     4.688.947    

FH     4.688.947    

Fylkir     4.688.947    

Fjölnir     4.688.947    

ÍA     4.688.947    

ÍBV     4.688.947    

KR     4.688.947    

Stjarnan     4.688.947    

Valur     4.688.947    

Víkingur Ó     4.688.947    

Víkingur R     4.688.947    

Þróttur R     4.688.947

    

1. deild karla     

Fram     2.100.000    

Grindavík     2.100.000    

Haukar     2.100.000    

HK     2.100.000    

KA     2.100.000    

Keflavík     2.100.000    

Leiknir F     2.100.000    

Leiknir R     2.100.000    

Selfoss     2.100.000    

Þór     2.100.000    

    

2. deild karla     

Afturelding     1.400.000    

Vestri     1.400.000    

Grótta     1.400.000    

Höttur     1.400.000    

ÍR     1.400.000    

KF     1.400.000    

Magni     1.400.000    

Sindri     1.400.000    

Völsungur     1.400.000    

Ægir     1.400.000    

    

Önnur félög í deildarkeppni og sameiginleg lið í efri deildum - þátttaka í KSÍ mótum (bæði kyn)

Dalvík     1.000.000    

Einherji     1.000.000    

Reynir S     1.000.000    

Tindastóll     1.000.000    

Víðir     1.000.000    

Þróttur V     1.000.000    

Álftanes     1.000.000    

Hamar     1.000.000    

Skallagrímur     1.000.000    

Snæfell     1.000.000    

Kormákur     1.000.000    

Hvöt     1.000.000    

Austri     1.000.000    

Valur Rfj     1.000.000    

Þróttur N     1.000.000    

    

Samtals:     106.267.364    






Fleiri fréttir

Sjá meira


×