Peningar annarra

Fréttablaðið Fastir pennar 04. febrúar 2012 06:00
Peningar annarra
Ólafur Þ. Stephensen skrifar:
Skýrsla sjálfstæðrar úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna inniheldur harða gagnrýni á ótal þætti starfsemi sjóðanna fyrir hrun. Tap þeirra á fjárfestingum í íslenzku viðskiptalífi varð gríðarlegt og tjón sjóðfélaganna, almennings í landinu, að sama skapi mikið.

Svo virðist að stjórnendur margra stærstu lífeyrissjóðanna hafi ekki haft í huga ábyrgð sína sem vörzlumanna lífeyris vinnandi fólks og látið hrífast með í áhættusækninni, sem einkenndi íslenzkt fjármálakerfi og varð því loks að falli. Segja má að þeir hafi sér til afsökunar þá sameiginlegu firringu sem ríkti í samfélaginu á þessum tíma, en lærdómarnir sem draga má af margvíslegum mistökum eru augljóslega fjöldamargir. Gagnrýni úttektarnefndarinnar beinist ekki eingöngu að stjórnendum lífeyrissjóðanna, heldur einnig að stjórnvöldum, sem klúðruðu meðal annars lagarammanum, endurskoðendum sjóðanna og Fjármálaeftirlitinu, sem sýndi sjóðunum ónógt aðhald.
Kjarni málsins felst að sumu leyti í þeirri ráðleggingu úttektarnefndarinnar til Alþingis að endurskoða lögin um lífeyrissjóði með hagsmuni sjóðfélaganna í forgrunni. „Mikilvægi slíkra ákvæða felst í sífelldri áminningu til stjórnenda lífeyrissjóða og annarra um að sjóðirnir séu að fara með fé annarra sem treysta á að það verði þeim til reiðu í framtíðinni. Þetta fé er því ekki fallið til áhættufjárfestinga þótt á fjárfestingartímanum virðist sem ágóði rétthafanna geti orðið mikill ef vel tekst til."

Í aðdraganda hruns virðast margir stjórnendur lífeyrissjóða hafa misst sjónar af þessu hlutverki sínu. Þeir fóru að líta á sig sem stóra kalla á markaðnum, í krafti peninga sjóðfélaga. Það hvernig stjórnir sjóðanna eru valdar, í huggulegu samkrulli verkalýðsforingja og atvinnurekenda, og nábýlið við lúxuslifnað bankamannanna, gerði lítið til að minna menn á ábyrgðina gagnvart sjóðfélögunum.

Þess vegna er það góð tillaga hjá úttektarnefndinni að einn eða fleiri stjórnarmenn í lífeyrissjóðum verði kosnir beinni kosningu af sjóðfélögum. Reynslan af því fyrirkomulagi verði svo metin eftir fimm ár. Sama má segja um að sá tími, sem menn geta setið í stjórn lífeyrissjóðs, verði takmarkaður og að siðareglur sem taka á meðal annars boðsferðum og gjöfum verði í reglubundinni endurskoðun til að „halda vitund starfsmanna og stjórnar vakandi um þær kröfur sem slíkar reglur gera til þeirra". Staðreyndin er sú, eins og vakin er athygli á í skýrslunni, að fæstir lífeyrissjóðir höfðu slíkar siðareglur fyrir hrun en hafa nú flestir bætt úr því.

Víða í nágrannalöndum okkar eru lífeyrissjóðirnir virkir á aðalfundum stórra hlutafélaga og beita sér þar í þágu langtímahagsmuna eigenda sinna, sjóðfélaganna. Þeir gera þannig iðulega athugasemdir við of mikla áhættusækni eða ofurlaun stjórnenda, en lítið fór fyrir slíkri gagnrýni af hálfu lífeyrissjóðanna fyrir hrun. Úttektarnefndin leggur til að sjóðirnir marki sér stefnu, m.a. um skilyrði um stjórnarhætti og samfélagslega ábyrgð fyrirtækja sem þeir fjárfesta í; „hvers konar hluthafi lífeyrissjóður eigi að vera" svo vitnað sé í skýrsluna.

Á því er augljóslega ekki vanþörf. Flestir lífeyrissjóðirnir þurfa að verða öðruvísi fjárfestar en þeir voru fyrir hrun og leggja ríkari áherzlu á hlutverk stjórnendanna; að ávaxta annarra manna peninga með varfærnum og ábyrgum hætti.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 25. maí. 2012 12:53

Útlendingar og Íslendingar

Stjórnarfar í Kína er ömurlegt. Sérstaklega læt ég ógeðslega ritskoðunartilburði fara í ta...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Raunhæfa planið

Þegar gjaldeyrishöft voru sett á í kjölfar hrunsins töldu flestir þau tímabundna ráðstöfun...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Umsókn um málfrelsi

Fyrir seinustu alþingiskosningar bauð RÚV framboðunum að fá ókeypis kynningartíma í sjónva...  

Meira
Fastir pennar 24. maí. 2012 06:00

Hin "sterka vísindahyggja“

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði athyglisverða grein hér í blaðið í síðust...  

Meira
Fastir pennar 23. maí. 2012 06:00

Kostur á kjarabót

Undanfarin ár hafa Íslendingar sem hyggja á fasteignakaup getað farið inn á vefsíður Íbúða...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Atkvæðaveiðigjald

Ríkisstjórnin kynnti í síðustu viku með talsverðum lúðrablæstri svokallaða fjárfestingaáæt...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Velferðarráðherra og sérgreinalæknar?

Í umræðunni undanfarið hefur verið tíðrætt um gjöld vegna komu til sérfræðilækna og svokal...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 20:00

Er meyjarhaftið mýta?

Sæl, Sigga Dögg. Ég las greinina þína um mýtuna um þröngu píkuna og var mjög hrifin. Mig l...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Hinn ómissandi óþarfi

Listahátíðin í Reykjavík var alltaf stórviðburður í lífi föður míns....  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Langtímaatvinnuleysi gefinn gaumur

Eftir langt skeið þar sem atvinnuleysi var nánast óþekkt á Íslandi skall það á af þunga ve...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Goðsögnum hnekkt

Háskóli Íslands hefur kannað hvernig einkunnir nemenda skiptast eftir þeim framhaldsskólum...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Uppvakningur tekinn í fóstur

Sagt var að siðfræði margra þeirra sem áttu og stjórnuðu gömlu bönkunum fyrir hrun hefði r...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 11:03

Til varnar Suðurnesjum

Pabbi vann tvo vetur í Grindavík eftir að hann kláraði kennaranám, frá 1972 til 1974. Pabb...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 08:00

Lög lygum líkust

Í frumvarpi að lögum um fjölmiðla sem nú liggur fyrir þinginu er lagt til að útlendingar u...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 06:00

Ríkisbónus

Í desember 2009 var samið um uppgjör milli gamla og nýja Landsbankans. Í því fólst meðal a...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Óttinn við upplýsingar

Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, skrifaði grein hér í b...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Útlendingarnir ógurlegu

Allir hafa lent í einhverjum vandræðum með nágranna sína. Lengi var saga hvers lands líka ...  

Meira
Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótið lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeið sett mikinn þrýsting á lífeyrissjóði landsins um að...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Það eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigðra þegar valdamesti maður heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvað Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsætisráðherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Það gefur á bátinn …

Það eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virðingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóðandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúð fyrr á þessu ári. Samhliða því fórum við yfir re...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Lifid
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Peningar annarra