Fótbolti

Pellegrini missti aldrei trúna

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Manuel Pellegrini, stjóri Manchester City, segir að öll lið þurfa að eiga sérstaka leikmenn til að ná árangri.

City vann í kvöld ótrúlegan 3-2 sigur á Bayern München í Meistaradeild Evrópu þar sem Sergio Agüero skoraði þrennu fyrir City-menn, þar af tvö mörk á síðustu fimm mínútum leiksins.

„Sergio Agüero er sérstakur leikmaður og afar mikilvægur. Liðið spilaði saman allt til enda - við fengum tvö ótrúleg mörk á okkur en leikmennirnir gáfust aldrei upp. Ég missti aldrei trúna. Aldrei.“

City er nú jafnt Roma og CSKA Moskvu að stigum en öll lið eru með fimm stig og berjast um það í lokaumferðinni að fara áfram í 16-liða úrslitin með Bayern München, sem var þegar búið að tryggja sér efsta sæti riðilsins.

„Það eru enn margir möguleikar í stöðunni en við erum jákvæðir eins og alltaf. Þetta er þó ekki bara undir okkur sjálfum komið en við verðum að gera það sem við getum með því að vinna Roma.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×