Jól

Pekanhnetu- og kökudeigsískaka

Rikka skrifar
visir/Rikka
Í Eldhúsinu hans Eyþórs síðastliðinn fimmtudag gerði Eyþór ómótstæðilega ísköku með pekanhnetum og kökudeigi.



Pekanhnetu- og kökudeigsískaka

Pekanhnetukökur

235 gr smjör

370 gr púðursykur

2 egg

2 msk  vanilludropar

375 hveiti

4 gr matarsódi

3 gr salt

300 gr karamellukurl

120 gr pekanhnetur

Appelsínubörkur af 2 appelsínum

Hitið ofninn í 175 gráður

Sykur og smjör þeytt saman í 1 mín. Eggjunum bætt út í einu í einu. Bætið karamellukurlinu, matarsóda, saltinu og pekanhnetunum út í. Endið á að blanda hveitinu út í. Setjið kökurnar í 35 gr skömmtum á bökunarplötu og inn í 175 gráðu heitan ofninn í 14 mín.

Ískaka

1 liter af vanilluís

210 gr pekanhnetukökur

fínt rifinn börkur af 2 appelsínum

Látið ísinn standa við stofuhita í 10 mín. Setjið hann í hrærivél með smákökunum og appelsínuberkinum. Látið vélina vinna saman í 2 mín. Setjið í form og inn í frysti í 10 tíma.

Ávaxtasalat

2 stk appelsínur

1 box jarðaber

1 box hindber

Skerið appelsínurnar í  lauf og jarðaberin í fernt. Blandið varlega saman við hindberin og setjið ofan á ískökuna. Gott er líka að mylja smákökurnar yfir ískökuna.


Tengdar fréttir

Laxatartar með estragonsósu

Eyþór Rúnarsson, meistarakokkur, töfrar hérna fram frábæran laxatartar sem tilvalin er í jólaboðið.

Svona gerirðu graflax

Eyþór Rúnarsson, sjónvarpskokkur er með uppskrift af hinum fullkomna grafna laxi með graflaxsósu sem svíkur engan.

Sveppahjúpað hátíðarhreindýr

Hreindýr er hátíðlegur matur. Eyþór Rúnarsson, sjónvarpskokkur er hér með frábæra uppskrift af hreindýralund sem hjúpuð er sveppum, kremaðri sveppasósu og graskers-,peru- og gráðaostasalati

Ómótstæðileg epla- og brómberjabaka

Eftirréttirnir eru rúsínan í pylsuendanum á jólaborðinu. Eyþór Rúnarsson, sjónvarpskokkur töfraði fram þessa ómótstæðilegu epla- og brómberjaböku sem allir geta leikið eftir

Jólaöndin hans Eyþórs

Eyþór Rúnarsson, matreiðslumeistari og þáttastjórnandi Eldhússins hans Eyþórs á Stöð 2 bjó til ómótstæðilega heilsteikta önd með sveppa og trönuberjafyllingu ásamt ljúffengri sósu og kartöflum í hátíðarbúning.






×