Íslenski boltinn

Pedersen seldur til Noregs

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Patrick Pedersen.
Patrick Pedersen. vísir/stefán
Markahæsti leikmaður Pepsi-deildar karla síðasta sumar, Patrick Pedersen, verður ekki áfram í íslenska boltanum.

Valsmenn staðfesta í fotbolti.net að félagið sé búið að selja leikmanninn til norska félagsins Viking.

Salan er með þeim fyrirvara að Pedersen standist læknisskoðun.

Valsmenn ætla sér að fá nýjan framherja til þess að fylla skarð Pedersen en það skarð verður vandfyllt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×