Körfubolti

Pedersen er sannkallaður endurkomumeistari

Óskar Ófeigur Jónsson í London skrifar
Craig Pedersen er við það að koma Íslandi í lokakeppni Evrópumótsins í fyrstu tilraun.
Craig Pedersen er við það að koma Íslandi í lokakeppni Evrópumótsins í fyrstu tilraun. vísir/Vilhelm
Ísland er væntanlega á leiðinni á EM í körfubolta á næsta ári og ein aðalástæðan fyrir því að liðið skipa leikmenn og þjálfarar sem gefast aldrei upp. Aðalþjálfari liðsins er líka maður sem hefur lagt það í vana sinn að stýra eftirminnilegum endurkomum á árinu 2014.

Íslenska körfuboltalandsliðið vann sinn stærsta sigur í Koparkassanum í London í fyrrakvöld þegar liðið tryggði sér annað sætið í sínum riðli í undankeppni EM með því að vinna 71-69 sigur á Bretlandi.

Íslenska liðið vann þarna sinn annan endurkomusigur í röð á móti Bretum en það stóð ekki öllum á sama þegar Bretarnir voru þrettán stigum yfir í upphafi seinni hálfleiksins. Breska liðið var með meðbyr allan fyrri hálfleikinn og hófu þann seinni á því að skella niður tveimur þriggja stiga körfum.

Íslenska liðið átti hins vegar frábæran endasprett eins og í hinum tveimur leikjum sínum í undankeppninni. Liðið vann síðustu sextán mínúturnar á móti Bretum með 20 stigum í Laugardalshöllinni og síðustu 19 mínúturnar með 15 stigum í London í fyrrakvöld. Þá má ekki gleyma því hvernig strákarnir komu sér aftur inn í leikinn í Bosníu þótt hann hafi síðan tapast.

Craig Pedersen og aðstoðarþjálfarinn Arnar Guðjónsson fagna í Höllinni.vísir/vilhelm
Áhrif Pedersen á íslenska liðið

Craig Pedersen tók við þjálfun íslenska landsliðsins í ár og hann er væntanlega að koma liðinu inn á Evrópumótið í fyrstu tilraun. Það er þó ekkert öruggt enn þá því enn á eftir að koma í ljós hvaða sex lið komast á EM af þeim sjö sem enda í öðru sæti í sínum riðlum.

„Við lentum þrettán stigum undir en héldum bara áfram að berjast, berjast og berjast. Við börðumst við þá allan tímann og efnafræði okkar liðs skipti miklu máli í kvöld,“ sagði Craig Pedersen og er þar að tala um samheldnina, fórnfýsina og bræðralagið sem einkennir íslenska körfuboltalandsliðið í dag.

Þetta er ekki fyrsta liðið undir hans stjórn sem kemur til baka með eftirminnilegum hætti á þessu ári. Sú var raunin þegar hann gerði Svendborg að dönskum bikarmeisturum síðasta vetur. Svendborg var þá 23 stigum undir í hálfleik á móti sterku liði Bakken Bears en tryggði sér bikarinn með því að vinna seinni hálfleikinn með 26 stigum. Craig vill samt ekki stimpla sig sem einhvern endurkomumeistara.

Hlynur Bæringsson, fyrirliði, skorar á móti Bretlandi.vísir/vilhelm
Reyni að hugsa ekki út í EM

„Ég hef verið heppinn í öllum þessum leikjum að hafa hjá mér harðgera leikmenn sem neita að tapa. Þeir gáfu í og þá sérstaklega varnarlega og settu um leið nýjan tón í leikinn,“ sagði Craig. Það er líka ómögulegt fyrir hann að setja þennan sigur í sæti á listanum yfir flottustu sigrana á þjálfaraferlinum.

„Það eru svo margir leikir sem skipta mig miklu máli. Þessi er einn af þeim sem og leikurinn á heimavelli á móti Bretlandi. Það var einnig frábær sigur því það voru ekki margir í Evrópu sem bjuggust við sigri hjá okkur í þeim leik. Það er því mikið afrek að vinna þá aftur og það á þeirra heimavelli,“ sagði Craig og bætti við:

„Auðvitað skiptir þessi leikur mestu máli núna því hann er nýbúinn. Bikarsigurinn í Danmörku fyrir átta mánuðum var einnig risastór sigur,“ segir Craig og hann er strax farinn að hugsa um næsta leik. „Við viljum enda þetta sumar með sigri á Bosníu. Þetta voru frábær úrslit en við þurfum að halda haus og einbeita okkur að því að vinna næsta leik líka og halda áfram allt þangað til við vitum fyrir víst hvernig þetta endar,“ sagði Craig.

Það kemur nefnilega ekki endanlega í ljós fyrr en eftir viku hvort Ísland kemst inn á EM. „Ég er að reyna að hugsa ekki of mikið um EM fyrr en að við erum öryggir inn. Það getur svo margt gerst þangað til. Við eigum að njóta þessa sigurs okkar úti í Evrópu, sem var enginn hægðarleikur. Það er erfitt að vinna á útivelli í Evrópukeppninni og þá sérstaklega ef þú ert ekki ein af stóru þjóðunum.“

Endurkomur undir stjórn Craigs Pedersen:

Leikur við Breta í Laugardalshöllinni

Ísland 36-43 undir eftir 26 mínútur

+20 - vann lokakaflann 47-27 og leikinn þar með 83-70

Leikur við Bosníu út í Bosníu

Ísland 33-56 undir eftir 30 mínútur

+13 - vann lokaleikhlutann 29-16 og tapaði bara með 10 stigum, 62-72.

Leikur við Bretland í London

Ísland 31-44 undir eftir 21 mínútu

+15 - vann lokakaflann 40-25 og leikinn þar með 71-69

... og ein önnur sem Craig gleymir seint

Bikarúrslitaleikurinn í Danmörku 2014 milli Svendborg og Bakken Bears

Svendborg 30-53 undir í hálfleik

+26 - vann seinni hálfleikinn 57-31 og leikinn þar með 87-84


Tengdar fréttir

Leik lokið: Bretland - Ísland 69-71 | Strákarnir eru á leiðinni á EM

Íslenska körfuboltalandsliðið er á leiðinni á EM eftir frábæran 71-69 endurkomusigur á Bretum í Koparkassanum í London í kvöld. Íslenska liðið var tíu stigum undir í hálfleik en gafst ekki upp og tryggði sér sigurinn með stórkostlegum seinni hálfleik.

Gleymdi dóttur sinni í sigurvímu

"Þetta var náttúrulega með ólíkindum. Ég veit ekki hvar ég var eftir þennan leik,“ segir körfuknattleiksþjálfarinn Benedikt Guðmundsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×