Körfubolti

Pedersen: Vildum ekki að leikmennirnir væru að horfa á stigatöfluna

Ingvi Þór Sæmundsson í Laugardalshöll skrifar
Craig Pedersen hefur náð frábærum árangri með íslenska landsliðið.
Craig Pedersen hefur náð frábærum árangri með íslenska landsliðið. mynd/bára dröfn kristinsdóttir
Craig Pedersen er búinn að koma Íslandi á tvö Evrópumót í röð en íslensku strákarnir tryggðu sér farseðilinn á EM 2017 með sex stiga sigri, 74-68, á Belgum í kvöld.

„Ég er ótrúlega stoltur af liðinu og það er jafnvel enn betra að tryggja þetta með sigri á heimavelli,“ sagði Pedersen í samtali við Vísi eftir leikinn í dag.

Ísland byrjaði leikinn frekar illa og þá sérstaklega í sókninni.

„Við áttum í miklum vandræðum með að skora í upphafi leiks en það var ekki vegna þess að við sköpuðum okkur ekki færi. Það kom mér skemmtilega á óvart hvað við fengum mörg góð skot. Þau duttu ekki en við héldum samt alltaf áfram og börðumst í vörninni,“ sagði Pedersen sem var sérstaklega ánægður með varnarleik íslenska liðsins í dag.

„Hann var lykilinn að sigrinum. Við fengum mikla orku úr varnarleiknum og náðum fyrir vikið betra flæði í sókninni. Að halda liði eins og Belgíu í 68 stigum er vel af sér vikið.“

Kýpur bar sigurorð af Sviss skömmu áður en leikur Íslands og Belgíu hófst. Það þýddi að íslenska liðinu dugði sigur til að komast áfram. Pedersen segist hafa vitað af sigri Kýpurs en að íslensku strákarnir hafi ekki vitað neitt.

„Ég vissi af þeim úrslitum sem og úrslitum í öðrum riðlum. Við vissum því nokkuð hvaða úrslit myndu duga okkur. En það er miklu betra að komast áfram með því vinna en að tapa með ákveðið litlum mun,“ sagði Pedersen.

„Enginn af leikmönnunum vissi þetta og við vildum ekki að þeir væru að horfa upp á stigatöfluna í sífellu. Við vildum bara vinna leikinn.“


Tengdar fréttir

Ísland tryggði sig inn á Eurobasket | Myndaveisla

Íslenska karlalandsliðið í körfubolta tryggði sér sæti á Evrópumeistaramótið í körfubolta á næsta ári þegar liðið lagði Belgíu 74-68 í Laugardalshöllinni í kvöld.

Kristófer: Shout-out á Guðna

Kristófer Acox kom eins og stormsveipur inn í íslenska landsliðið í undankeppni EM 2017. Hann fékk ekki leyfi til að fara á EM í fyrra en ætlar að sjálfsögðu að vera með á næsta ári.

Jón Arnór: Sérstakt að gera þetta tvisvar í röð

Jón Arnór Stefánsson skoraði síðustu fjögur stig Íslands í sigrinum á Belgíu í Laugardalshöllinni í dag. Með sigrinum tryggði Ísland sér sæti á EM, annað skiptið í röð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×