Körfubolti

Pedersen: Strákarnir eiga njóta þess að spila svona leik

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Craig Pedersen og Arnar Guðjónsson fagna í fyrri leiknum gegn Bretlandi.
Craig Pedersen og Arnar Guðjónsson fagna í fyrri leiknum gegn Bretlandi. Vísir/Vilhelm
Craig Pedersen, þjálfari íslenska körfuboltalandsliðsins, ætlar að passa upp á það að breyta ekki of miklu í leik liðsins þrátt fyrir að liðið hafi endurheimt Jón Arnór Stefánsson. Íslenska landsliðið tryggir sér annað sætið í riðlinum og nær örugglega sæti á EM með sigri á Bretum í Koparkassanum í London í kvöld.

„Þetta er mjög spennandi leikur. Við höfum talað um það að þetta er frábært tækifæri en að við verðum að njóta þessa að spila þennan leik. Við verðum að spila af sömu áræðni og í hinum fjórum leikjunum okkar í sumar," sagði Craig Pedersen.

„Þeir eiga örugglega eftir að gera litlar breytingar eins og við gerum líka. Lykilatriðið er að strákarnir verði áfram jafngrimmir í vörn sem sókn," sagði Pedersen. Hann fagnar því að fá Jón Arnór Stefánsson inn í liðið fyrir kvöldið.

„Hann kemur með mikla reynslu inn í liðið og hann er mjög góður íþróttamaður. Hann getur búið til sitt eigið skot sem og skot fyrir aðra. Hann er líka góður í vörninni, bæði í vörn á mann með bolta en einnig í hjálparvörninni. Hann kemur því með margt inn í liðið," sagði Pedersen.

„Við erum samt ekki að breyta neinu hans vegna. Við spilum alveg eins og þegar hann var að æfa með okkur áður en hann datt út í nokkrar vikur. Það er ekkert að breytast hjá okkur," sagði Pedersen.

„Hann er mjög góður sendingamaður þannig að ef þeir ætla að dekka hann stíft þá mun hann finna opinn liðsfélaga. Við erum að spila saman sem lið í þessum leik og ef einhver er opinn þá þarf hann að vera tilbúinn að skjóta boltanum alveg eins og í hinum leikjunum," sagði Pedersen.

„Liðið hefur sýnt mikinn baráttuanda í öllum leikjunum og fyrir mér þá spila Íslendingar þannig bolta. Við þurfum að spila áfram af þeim krafti," sagði Pedersen.

„Ég vona að við getum skrifað söguna í þessum leik. Við munum allavega mæta til þess að spila okkar besta leik. Það getur margt gerst í íþróttum en við erum með lið sem getur unnið þá. Ef þeir spila betur en við þá geta þeir einnig unnið. Við verðum bara að mæta með baráttuandannn og spila eins vel og við getum," sagði Pedersen að lokum.


Tengdar fréttir

Hlynur: Síðasta tækifærið fyrir okkur eldri karlana

Hlynur Bæringsson, fyrirliði íslenska karlalandsliðsins í körfubolta, telur að leikurinn í kvöld þegar íslenska landsliðið getur komist langleiðina inn á EM með sigri á Bretum í London sé sá stærsti og mikilvægasti á ferlinum.

Bretar og Bosníumenn mætast í kvöld

Bretland og Bosnía mætast í Copper Box Arena í London í kvöld í öðrum leik A-riðils í undankeppni EM 2015 í körfubolta.

Logi: Við erum allir eins og bræður

Logi Gunnarsson, leikjahæsti leikmaður íslenska landsliðsins, er harður á því að leikurinn á móti Bretum í kvöld sé sá stærsti á ferlinum ásamt því að hrósa liðsheildinni í íslenska landsliðinu.

Margir yrðu hissa ef Ísland kæmist á EM

Haukur Helgi Pálsson og Martin Hermannsson sáu til þess að Ísland saknaði ekki Jóns Arnórs Stefánssonar í sigrinum mikilvæga á Bretlandi í fyrrakvöld.

Pavel: Verðum að gleyma að Jón Arnór sé til

Ísland mætir Bretlandi í undankeppni Evrópumótsins í körfuknattleik á sunnudaginn og segir Pavel Ermolinskij að það sé sárt að missa Jón Arnór Stefánsson úr hópnum.

Bestu úrslitin í Evrópuleik á Balkanskaganum

Íslenska körfuboltalandsliðið tapaði með tíu stiga mun á móti Bosníu í Bosníu í kvöld eins og áður hefur komið fram á Vísi. Þrátt fyrir tapið er þetta bestu úrslit íslenska körfuboltalandsliðsins á þessum slóðum.

Haukur Helgi: Við ætlum okkur á EM

Haukur Helgi Pálsson ætlar ekki að láta meiðsli stoppa sig frá því að spila leikinn gegn Bretum í London í kvöld. Haukur lenti í töluverðum vandræðum út í Bosníu á dögunum vegna meiðsla og vinnuvandræða en liðsfélagar hans stigu upp í fjarveru hans.

Logi: Forréttindi fyrir mig

Logi segir að liðið muni sakna Jóns Arnórs, en að ábyrgðin færist yfir á aðra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×