Viðskipti erlent

Pebble snýr sér aftur að Kickstarter og setur nýtt met

Samúel Karl Ólason skrifar
Nýja snjallúr Pebble heitir Pebble Time.
Nýja snjallúr Pebble heitir Pebble Time.
Snjallúraframleiðendurnir Pebble hafa snúið sér aftur til Kickstarter til að fjármagna framleiðslu úrsins Pebble Time. Að þessu sinni safnaði fyrirtækið einni milljón dala á 49 mínútum, sem er nýtt met. Alls hefur fyrirtækið nú safnað nærri því níu milljónum dala, en lagði upp með hálfa milljón sem markmið.

Talsmaður Kickstarter segir CNN að þetta sé hraðasta söfnun í sögu fjöldafjármögnunar-síðunnar. Gamla metið var sett á einni klukkustund og 42 mínútum.

Hið nýja úr Pebble, er sagt vera 20 prósent þynnra en eldri úr fyrirtækisins og að rafhlaða þess endist í allt að sjö daga. Það mun bjóða upp á raddstýringu og uppfært stýrikerfi.

Fyrsta úr fyrirtækisins var einnig fjármagnað með Kickstarter, fyrir þremur árum, en þeir sneru aftur að fjöldafjármögnun til að vera nær viðskiptavinum sínum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×