Innlent

Pavel steig niður í litla sundlaug

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Pavel ásamt slökkviliðsmanni sem á inni kjöt og fisk hjá körfuknattleikskappanum.
Pavel ásamt slökkviliðsmanni sem á inni kjöt og fisk hjá körfuknattleikskappanum. Vísir/Stefán
„Ég var að sýna félaga mínum húsið í morgun, labbaði inn og tók ekki eftir neinu. Svo steig ég niður og beint ofan í litla sundlaug,“ segir Pavel Ermolinskij. Körfuknattleiksmaðurinn lenti í því, eins og svo margir á höfuðborgarsvæðinu í morgun, að flæddi inn í kjallara.

Vísir/Stefán
Pavel hyggur á opnun kjöt- og fiskbúðar á næstu vikum í miðbæ Reykjavíkur, á horni Spítalastígs og Bergstaðastrætis, nánar tiltekið Bergstaðastræti 14. Þar var allt á floti í morgun en betur fór en á horfðist.

„Allur gangurinn, sjö til átta fermetrar, var fullur af vatni. Sem betur fer er hins vegar smá halli upp í móti þannig að vatnið náði ekki inn í aðalrýmið,“ segir Pavel. Það hafi bjargað því að litlar skemmdir urðu á húsnæðinu.

Hann hafi ásamt félaga sínum byrjað að moka vatni út úr rýminu en eftir klukkutíma gefist upp. Ákváðu þeir að leita á náðir slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu.

„Þeir komu fljótlega með þvílíkar græjur og redduðu þessu á litlum tíma,“ segir Pavel og kann þeim bestu þakkir fyrir. Þeir séu velkomnir í búðina um leið og hún opni og eigi von á glaðningi.

Vísir/STefán
Vísir/STefán

Tengdar fréttir

Mikið flætt inn í hús vegna veðurs

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hefur þurft að sinna mörgum útköllum það sem af er degi vegna vatnsleka í íbúðarhúsum, aðallega í Hátúni.

Heldur ekki vatni yfir frammistöðu slökkviliðsmanna

Steingerður Þórisdóttir, íbúi í Samtúni í póstnúmeri 105 í Reykjavík, segir slökkviliðsmenn á höfuðborgarsvæðinu eiga afar mikið hrós skilið fyrir frammistöðu sína í dag.

Allt á floti í Kópavogi

Gísli Sigurður, íbúi í Kópavogi, fór á stjá í morgun og tók meðfylgjandi myndband sem lýsir vel vatnsmagninu á götum Kópavogar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×