Körfubolti

Pavel aftur með þrennu að meðaltali í leik

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Pavel Ermolinskij.
Pavel Ermolinskij. Vísir/Vilhelm
Pavel Ermolinskij var með þrefalda tvennu á tæpum 29 mínútum þegar topplið KR vann 113-82 sigur á Skallagrími í Borgarnesi 8. umferð Dominos-deildar karla í körfubolta í gær en þetta var þriðja þrenna kappans í síðustu fjórum leikjum.

Pavel var kominn með 7 stig, 8 fráköst og 11 stoðsendingar í hálfleik og endaði með 15 stig, 12 fráköst og 16 stoðsendingar.

Pavel er þar með aftur kominn með þrennu að meðaltali í leik en meðaltölin hans úr fimm leikjum eru 14,4 stig, 10,2 fráköst og 12,0 stoðsendingar.

Pavel vantaði eitt frákast upp á það að vera með þrennu að meðaltali eftir fyrstu fjóra leiki sína en hann var með þrennu að meðaltali eftir bæði leik tvö og leik þrjú.

KR-ingar hafa unnið átta fyrstu leiki sína í Dominos-deildar karla í körfubolta á þessu tímabili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×