Körfubolti

Pavel: Kem í besta falli inn í úrslitakeppnina

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Pavel fylgist með lokamínútum leiksins gegn Stjörnunni.
Pavel fylgist með lokamínútum leiksins gegn Stjörnunni. Vísir/Þórdís Inga
„Það er engin nánari greining komin á meiðslunum. Ég er enn að bíða eftir því að komast í ómskoðun," segir KR-ingurinn Pavel Ermolinskij en meiðslin sem hann varð fyrir í bikarúrslitaleiknum gegn Stjörnunni um helgina hafa valdið heilabrotum.

Sjá einnig: Stjarnan bikarmeistari 2015

Eins og áður hefur verið fjallað um rann Pavel til á lokamínútum leiksins gegn Stjörnunni um helgina. Garðbæingar urðu svo bikarmeistarar eftir æsilegan lokasprett en Pavel neyddist til að fylgjast með öllu saman af hliðarlínunni.

„Mín fyrstu viðbrögð eftir að þetta gerðist að þetta væri aftan í læri enda fann ég að það var eitthvað sem gaf sig,“ sagði hann við Vísi í dag.

Hér er beðið um skiptingu fyrir Pavel.Vísir/Þórdís Inga
„Hins vegar er ég með fullan styrk aftan í lærinu. Ég finn það alveg. En það eru svo vissar hreyfingar sem framkalla mikinn sársauka og get ég ekki sagt að þetta sé hefðbundin meiðsli aftan í læri.“

„Fyrsta mál á dagskrá er að komast að því hvers kyns meiðslin eru nákvæmlega og vonandi kemur það í ljós í ómskoðuninni. Þangað til er lítið hægt að gera. Það er líka afar einkennilegt að finna fyrir sársauka en geta ekki staðsett hann nákvæmlega.“

Sjá einnig: Hannes: Vitum ekki hvort að dúkurinn var til vandræða

KR getur tryggt sér deildarmeistaratitilinn með sigri á botnliði Skallagríms á morgun ef Tindastóll tapar fyrir Grindavík á sama tíma. Fjórar umferðir eru eftir af deildarkeppninni og má heyra á Pavel að hann er ekki bjartsýnn á að geta tekið þátt í þeim.

„Ég er auðvitað ekki læknir sjálfur en það kæmi mér mjög á óvart. Ég hef reynslu af svona meiðslum og mig grunar að þetta verði einhver tími sem ég verð frá. Ég vona auðvitað að ég spili með í úrslitakeppninni en eins og staðan er nú lít ég á það sem allra besta raunhæfa kostinn í stöðunni.“

„Kannski að maður sé full neikvæður gagnvart öllu saman. Það er auðvitað betra að vera jákvæður en það er of snemmt að segja til um hvernig þetta þróast.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×