Körfubolti

Pavel, Darri og Brynjar áfram | KR reiknar með Craion

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
KR varð Íslandsmeistari í vor eftir sigur á Tindastóli í úrslitarimmu.
KR varð Íslandsmeistari í vor eftir sigur á Tindastóli í úrslitarimmu. Vísir/Auðunn
Pavel Ermolinskij, Darri Hilmarsson og Brynjar Þór Björnsson hafa allir skrifað undir nýjan tveggja ára samning við KR en þetta kemur fram á karfan.is.

Snorri Hrafnkelsson gekk í raðir KR frá Njarðvík á dögunum eins og greint hefur verið frá en hann skrifaði undir sinn samning við sama tilefni.

Böðvar Guðjónsson, varaformaður körfuknattleiksdeildar KR, sagði við karfan.is að hann reiknaði með því að félagið myndi halda Michael Craion sem var einn allra besti leikmaður Domino's-deildarinnar á síðasta tímabili.

„Það er mikil tilhlökkun í herbúðum KR fyrir komandi tímabili og reikna má með að Mike Craion verði einnig með liðinu á næsta tímabili,“ sagði Böðvar.

Helgi Már Magnússon er einnig á samningi hjá KR á næsta tímabili og Böðvar segir að kjarni KR-liðsins muni halda sér næstu árin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×