Erlent

Patti Smith gleymdi texta við lag Bob Dylan í miðjum flutningi

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Smith var miður sín yfir atvikinu.
Smith var miður sín yfir atvikinu. Vísir/EPA
Söngkonan góðkunna Patti Smith hefur beðist afsökunar á því að hafa gleymt texta við lag Bob Dylan þegar Nóbelsverðlaunin í bókmenntum voru afhent.

Smith söng þar til heiðurs Dylan, sem hlaut verðlaunin þetta árið. Flutti hún lag hans, A Hard Rain's A-Gonna Fall en þurfti að hætta í miðju lagi.

„Ég er svo stressuð,“ sagði Smith við áhorfendur sem studdu hana til dáða og klöppuðu fyrir henni áður en hóf söng á ný.

Dylan sjálfur var ekki viðstaddur athöfnina sem fór fram í Stokkhólmi í Svíþjóð í gær en myndband af atvikinu má sjá hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×