Handbolti

Patrekur vildi ekkert tjá sig um dómgæsluna

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Doha skrifar
Dómgæsla króatíska dómaraparsins sem dæmdi viðureign Austurríkis og Katar í 16-liða úrslitum HM í handbolta í Katar. vakti athygli. Heimamenn höfðu betur, 29-27.

Patrekur Jóhannesson, þjálfari Austurríkis, vildi ekki tjá sig um dómgæsluna á blaðamannafundi en sagði þó við Vísi eftir leik að hann hafi verið hissa á mörgum ákvörðunum dómaranna.

„Ég passaði mig á því að segja ekkert við fjölmiðlamenn um dómgæsluna svo ég verði ekki dæmdur í bann. En ég neita því ekki að sumir dómarnir voru undarlegir,“ sagði Patrekur í stuttu spjalli við Arnar Björnsson eftir blaðamannafundinn.

Arnar rædddi einnig við markvörðinn Nikola Marinovic og fyrirliðann Viktor Szilagyi eftir leik.

„Ég óska Katar til hamingju með sigurinn og sætið í 8-liða úrslitunum. En ég er stoltur af liðinu og hverjum einasta leikmanni. Við börðumst fram á síðustu stundu og ég held að Austurríki geti verið stolt af handboltalandsliðinu sínu,“ sagði Marinovic en viðtölin við þá má sjá í heild sinni efst í fréttinni.

Markvörðurinn öflugi vildi þó ekkert tjá sig um dómgæsluna en Szilagyi undraðist margt í starfi dómaranna í dag.

„Ég skil ekki mörg sóknarbrotin sem þeir dæmdu á bæði lið, sérstaklega í seinni hálfleik. Ég veit ekki til þess að nokkurt lið hafi brotið jafn oft af sér í sókn og þessi lið gerðu í kvöld. Það hef ég aldrei séð áður í handbolta.“

„Vonbrigðin eru mikil núna. Við höfum lagt mikið á okkur undanfarnar vikur og þetta var afar erfiður leikur. Þetta er mjög erfitt fyrir okkur.“

„Manni hefur verið kennt frá því í æsku að sækja alltaf að markinu. Svo þegar maður sótti að markinu í kvöld var dæmt á mann í annað hvert skiptið. Þá var erfitt að halda ró sinni og spila handbolta.“

Hann segist vera stoltur af sínu liði. „Já, ég er stoltur og sú tilfinning kemur örugglega almennilega eftir nokkra daga.“


Tengdar fréttir

Patrekur og félagar úr leik

Heimamenn í Katar eru komnir áfram í 8-liða úrslit á HM eftir tveggja marka sigur, 29-27, á lærisveinum Patreks Jóhannessonar í austurríska landsliðinu.

Af hverju er Patrekur alltaf með "teipið“ á fingrunum?

Patrekur Jóhannesson var alls ekkert spældur yfir því að Austurríki náði ekki að sigra Makedóníu í síðasta leiknum í B-riðlinum. Makedónía vann 36-30. Vendipunkturinn í leiknum var þegar leikstjórnandinn Vytautas Ziura fékk beint rautt spjald þegar 5 mínútur voru búnar af seinni hálfleik. Þá var staðan 19-18, Austurríki í vil. Makedóníumenn náðu fimm marka forystu á næstu 5 mínútum og unnu öruggan sigur. Makedónía mætir Slóvenum í 16 liða úrslitum en Austurríki keppir við Katar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×