Handbolti

Patrekur hættir með Haukana

Patrekur í leik með Austurríki.
Patrekur í leik með Austurríki. vísir/afp
Haukar tilkynntu í kvöld að Patrekur Jóhannesson muni hætta að þjálfa karlalið félagsins eftir tímabilið.

Patrekur nýtti sér ákvæði í samningi sínum og sagði honum upp. Samkvæmt tilkynningu Hauka mun Patrekur ekki hafa tíma til að sinna starfinu af krafti.

Hann er nýbúinn að framlengja við handknattleikssamband Austurríkis og þarf að vera meira þar á næstu árum.

Fréttatilkynning Hauka:

Patrekur Jóhannesson hefur nýtt sér ákvæði í samningi sínum við handknattleiksdeild Hauka og mun því ljúka störfum sem þjálfari meistaraflokks karla hjá félaginu að loknu yfirstandandi tímabili.

Verkefni Patreks hjá landsliði Austurríkis munu færast í aukana í kjölfar nýs fimm ára samnings hans við austurríska handknattleikssambandið sem  tekur gildi í haust. Þau verkefni munu krefjast enn frekari viðveru utan landsteinanna á komandi misserum.

Af þeim sökum verður Patreki ekki kleift að sinna þjálfun meistaraflokks Hauka samfara landsliðsþjálfuninni.

Handknattleiksdeild Hauka hefur verið verið afar ánægð með störf Patreks sem hafa einkennst af mikilli fagmennsku og heilindum.

Framundan eru spennandi vikur þar sem úrslit munu ráðast í Íslandsmótinu og mun Patrekur að sjálfsögðu stjórna liði Hauka af fullum krafti á þeirri vegferð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×