Tónlist

Passar upp á Nirvana lögin

Courtney Love passar vel upp á lög Nirvana og segist vera með sólóplötu í smíðum.
Courtney Love passar vel upp á lög Nirvana og segist vera með sólóplötu í smíðum.

Courtney Love, ekkja Kurts Cobain úr Nirvana, passar vel og vandlega upp á notkunarréttinn á lögum hljómsveitarinnar.

„Einhver verður að passa upp á þetta. Um leið og ég myndi selja réttinn færu lögin í söngleiki sem myndu græða milljarða dollara og þá eru komnar djasshendur á loft á Broadway,“ sagði Love við tímaritið Bust. „Eða að Kurt yrði kominn í auglýsingar fyrir Gatorade. Ég mun aldrei selja minn hluta af réttinum vegna þess að enginn annar myndi nenna að vernda hann.“

Love er að undirbúa nýja sólóplötu og segist eiga tvö frábær lög á lager.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×