Lífið

Páskauppskriftir: Himneskur sælgætisís og marengs berjabomba

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Marengs berjabomba.
Marengs berjabomba. mynd/heimir óskarsson
Páskarnir eru á næsta leyti og eflaust einhverjir í vafa um hvaða góðgæti eigi að bjóða upp á í páskaboðunum. Thelma Þorbergsdóttir, sem heldur úti matarblogginu Freistingar Thelmu, fullyrðir að uppskriftirnar tvær, sem finna má hér fyrir neðan, muni slá í gegn í matarboðum.

Marengs berjabomba

Innihald

Brownie

230 g sykur

4 egg

200 g smjör

200 g dökkt konsum súkkulaði

70 g hveiti

Marengs

3 eggjahvítur

170g sykur

Fylling

½ lítri rjómi

Toppur

200 g dökkt súkkulaði

70 g smjör

3 msk síróp

Ber að eigin vali

Aðferð

Brownie

Hitið ofninn í 170 gráður og setjið smjörpappír í botninn á tveimur 20 cm hringlaga bökunarformum. Þeytið egg og sykur saman í skál þar til blandan verður ljós og létt. Bræðið smjör og súkkulaði saman í potti yfir lágum hita og hrærið stanslaust þar til súkkulaðið hefur náð að bráðna alveg. Setjið hveitið varlega saman við brædda súkkulaðið og hrærið vel. Hellið því næst súkkulaðiblöndunni saman við eggjablönduna og hrærið saman með sleif þar til allt hefur náð að blandast vel saman. Skiptið deiginu á milli formanna og bakið í 30 mínútur. Kælið kökurnar alveg áður en þið takið þær úr formunum. Á meðan þær kólna er gott að undirbúa marengsinn.

Marengsinn

Stillið ofninn í 150 gráður og setjið smjörpappír á bökunarplötu og myndi tvo hringi jafn stóra og brownie kökurnar eru. Þeytið eggjahvítur og sykur saman þar til blandan er orðin stíf og stendur. Smyrjið marengsinum á plötuna og bakið í 50 mínútur eða þar til marengsinn er orðinn þurr viðkomu. Kælið marengsinn alveg áður en þið staflið kökunum.

Súkkulaðiglassúr

Bræðið smjör, súkkulaði og síóp saman í pott við lágan hita og hrærið stanslaust þar til súkkulaðið hefur náð að bráðna alveg.

Þeytið rjóma og setjið á milli botnanna. Setjið marengs neðst og svo brownie og koll af kolli með rjóma á milli. Setjið súkkulaðiglassúrið ofan á og látið leka aðeins niður hliðarnar á kökunni. Skreytið með berjum að eigin vali og stráið flórsykri yfir berin með sigti. Geymið kökuna í kæli þar til hún er borin fram.

Thelma segir sælgætisísinn ávallt slá í gegn hjá yngri kynslóðinni.mynd/heimir óskarsson
Himneskur sælgætisís

Innihald

6 egg

6 msk sykur

120 g púðursykur

4 tsk vanilludropar

150 g tromp

100 g dökkt konsum súkkulaði

150 g lakkrískurl

7 dl rjómi

Skraut

100 g súkkulaðiperlur

4-5 stk ísfrom

2,5 dl rjómi

Þeytið eggjarauður og sykur saman þar til blandan verður ljós og létt. Blandið púðursykri varlega saman við með sleif. Þeytið rjómann og blandið honum saman við með sleif þar til allt hefur blandast vel saman. Grófsaxið súkkulaði og tromp og blandið því saman við ísblönduna ásamt lakkrískurlinu. Blandið því næst vanilludropunum saman við. Þeir sem vilja geta þeytt eggjahvíturnar og blandað saman við ísinn svo það verði meira úr honum eða geymt þær til annarra nota. Hellið ísblöndunni í hringlaga kökuform og frystið í lágmark 5 klukkustundir. Takið ísinn úr kökuforminu og setjið á disk. Skerið ísformin í tvennt og raðið þeim í kringum ískökuna. Þeytið rjóma og sprautið honum ofan í hvert ísform fyrir sig. Skreytið með súkkulaðiperlum. Ísinn geymist í frysti í allt að 3 mánuði.

Finna má fleiri álíka girnilegar uppskriftir á síðunni Freistingar Thelmu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×