Lífið

Páskamatseðill Helgu Mogensen

„Þegar hátíð ber að garði er svo gott að nýta tímann með vinum. Gleðjast yfir góðum mat og nærast þannig andlega og líkamlega,“ segir Helga Mogensen, sem deilir páskamatseðlinum á sínu heimili með lesendum Fréttablaðsins.

„Maturinn skiptir miklu máli hjá mér og alltaf gaman að breyta til þótt íhaldssemi sé alltaf einhver. En svona lítur kvöldmatseðill út á mínu heimili yfir páskana.“

Föstudagurinn langi

Bökuð bleikja með grænu salati og sítrónubakaðar kartöflur.



Ofan á bleikjuna er gott að setja sweetchili-engifersósu. 

Sweetchili-engifersósa

Hristið saman: 

1 msk. sweetchili-sósa

50 ml ólífuolía 

Dálítið af grófu salti 

1 msk. ferskur engifersafi

Baðið bleikjuflökin í sósunni og bakið í góðu eldföstu formi í 10 mínútur við 190°C. 

Grænt blandað salat með kryddjurtum og jarðarberjum

Smátt saxað spínat

Smátt saxað klettasalat (rucola) 

Handfylli af steinselju

Handfylli af kóríander 

Handfylli af mintu

Saxið kryddjurtirnar smátt og setjið saman við græna salatið. Þvoið jarðarberin vel og skerið í fernt, blandið saman við og stráið smá balsamik yfir og skreytið með fetaosti. 

Sítrónubakaðar kartöflur

50 ml olía

2 msk. nýkreistur sítrónusafi

3 hvítlauksgeirar kreistir saman við

1 tsk. salt

1 tsk. pipar

2-3 stk. kartöflur á mann

Hitið ofninn og byrjið á því að skera kartöflurnar í grófa bita. Setjið í gott ofnfast form. Hristið saman olíu og krydd ásamt sítrónusafa og hellið yfir kartöflurnar. Bakið við 200°C í um 30 mín. Skreytið með söxuðu dilli.



Páskadagur


Bakaður lambahryggur með rauðrófuappelsínusalati og sveppabláberjasósu.

Lambahryggurinn er bakaður eins og hver og einn kýs best.

Rauðrófuappelsínusalat 

2 stk. rauðrófur

1 tsk. salt 

½ tsk. pipar

Ólífuolía

3 appelsínur

Handfylli af steinselju

100 g saxaðar valhnetur

Pakkið rauðrófunum inn í álpappír og setjið inn í heitan ofninn og bakið við 190°C í 30-40 mín. Kælið niður og skrælið rauðrófurnar. Skerið niður í litla munnbita, skrælið appelsínurnar og skerið niður í munnbita, blandið vel saman og hellið salatsósunni yfir og skreytið með steinselju.



Salatsósa


2 tsk. Dijon-sinnep

2 msk. eplaedik

100 ml ólífuolía

1 tsk. salt 

½ tsk. pipar 

Hristið allt vel saman og bætið mögulega meira salti saman við.

Hristið allt vel saman og setjið yfir rauðrófuappelsínusalatið. Skreytið með saxaðri steinselju.

Annar í páskum

Hnetusteikin góða með bökuðum sætum kartöflum, sveppasósu og fersku asísku salati. Í eftirrétt verður súkkulaðikaka með bláberjarjóma.

Sveppasósa

500 g sveppir 

1 laukur meðalstór

100 g smjör

2 stk. hvítlaukur 

1 tsk. sítrónusafi

Handfylli af saxaðri steinselju

1 tsk. paprikuduft

Hnífsoddur af cayenne-pipar

1 -2 pk. kókoskrem

3 tsk. salt

2 tsk. svartur pipar

2 tsk. tamari- eða sojasósa 

2 tsk. sætt sinnep 

Þvoið sveppina og saxið gróflega. Skrælið laukinn og hvítlaukinn og skerið gróflega niður. Bræðið smjörið í góðum potti og byrjið á því að mýkja laukinn og hvítlaukinn ásamt 1 tsk. af salti. 

Bætið sveppunum saman við og kryddum, sinnepi og sojasósu, látið malla þar til sveppirnir eru orðnir mjúkir. Þá er kókoskremið sett saman við og áfram heldur sósan að malla. Smakkið til með grófu salti og grófum pipar. Maukið sósuna með töfrasprota. Hérna set ég smá rauðvín saman við en það er alls ekki nauðsynlegt.

Smakkið sósuna til með grófu salti og svörtum pipar.

Það sem er gott við þessa sósu er að hún er bragðgóður grunnur og auðvelt að laga að þínum smekk! Bætið t.d. kjötsoði saman við eða notið einungis rjóma. Sumum finnst gott að nota örlítið af rifsberjasultu og gera hana sæta. Rauðvín er dásamlegt saman við en alls ekki nauðsynlegt. 

Síðan er gott að frysta þessa sósu og eiga fyrir næstu veislu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×