Viðskipti innlent

Parlogis og Orange Project hefja samstarf

Sæunn Gísladóttir skrifar
Tómas Hilmar Ragnarz, framkvæmdastjóri Orange og Hálfdan Gunnarsson, forstjóri Parlogis.
Tómas Hilmar Ragnarz, framkvæmdastjóri Orange og Hálfdan Gunnarsson, forstjóri Parlogis. Mynd/Orange Project
Orange Project og Parlogis ehf. hafa gert með sér samstarfssamning sem sameinar krafta fyrirtækjanna á sérsviðum beggja og gerir þeim kleift að bjóða smærri heildsölum og sölufyrirtækjum fyrsta flokks þjónustu hvað varðar húsnæðislausnir, vörustjórnun og dreifingu segir í tilkynningu.

Orange Project hefur í tvö ár boðið upp á tilbúnar skrifstofulausnir fyrir fyrirtæki sem sjá sér hag í að setja alla sína krafta í kjarnastarfsemina og spara fé og fyrirhöfn með því að losna við þá yfirbyggingu sem fylgir hefðbundnum skrifstofurekstri.

Samningur fyrirtækjanna felur í sér að Orange leigir skrifstofuhúsnæði að Skútuvogi 3 þar sem Parlogis rekur einnig rúmlega 3000 fermetra vöruhús fyrir þurrvörur, kælivörur og frystivörur. Húsnæðið verður tilbúið til leigu þann 1. nóvember og með þessu samstarfi Parlogis og Orange geta smærri heildsölur og sölufyrirtæki komið sér fyrir á einum stað með alla þá þjónustu sem þarf til rekstrarins. Allt frá húsnæðislausnum til sérhæfðrar vörustjórnunar.

Um er að ræða 19 fullbúin skrifstofurými, auk opinna rýma og fyrsta flokks fundarherbergja. Auk leigu á skrifstofurýmum mun fyrirtækjum jafnframt standa til boða þjónusta frá Parlogis á sviði vöruhýsingar, birgðastýringar, dreifingar, innflutnings, innheimtu o.fl. Hagkvæmnin sem fylgir því að láta þessi tvö sérhæfðu fyrirtæki sjá um alla þessa umgjörð er mikil og gefur viðskiptavinum Parlogis og Orange Warehouse tækifæri til þess að setja alla sína orku í kjarnastarfsemina.  






Fleiri fréttir

Sjá meira


×