Bíó og sjónvarp

Parkour-stjarna leikur í Star Wars

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Pip er öflugur í Parkour.
Pip er öflugur í Parkour. vísir/getty
Pip Andersen, atvinnumaður í parkour, og bandaríska leikkonan Crystal Clarke eru nýjustu meðlimir leikaraliðs Star Wars: Episode VII.

Áheyrnarprufur fyrir hlutverkin voru haldin í ellefu borgum í Bandaríkjunum og Bretlandi og mættu rúmlega 37 þúsund manns. Auk þess sendu um þrjátíu þúsund manns umsóknir í gegnum netið.

Nýju Star Wars-myndinni er leikstýrt af J. J. Abrams en í aðalhlutverkum eru Carrie Fisher, Harrison Ford, Mark Hamill, Adam Driver og Lupita Nyong‘o en myndin verður frumsýnd í desember á næsta ári.


Tengdar fréttir

Upptökur hafnar á Star Wars

Aðdáendur Star Wars myndanna geta glaðst yfir því að vinnsla sé hafin á nýju myndunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×