Innlent

Parísarsamkomulagið „varða á lengri leið“

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Gunnar Bragi og Sigmundur segjast báðir ánægðir með samkomulagið sem náðist í París í dag.
Gunnar Bragi og Sigmundur segjast báðir ánægðir með samkomulagið sem náðist í París í dag.
„Ég fagna því að náðst hefur sögulegt og metnaðarfullt samkomulag í loftslagsmálum á Parísarfundinum og við munum leggja okkar af mörkum bæði hér heima og við að miðla þekkingu okkar og reynslu til annarra þjóða", segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra.

Tilefnið er nýtt samkomulag í loftslagsmálum sem náðist í París í dag og var samþykkt með lófataki. Í samkomulaginu er meðal annars kveðið á um að ríki skuli bregðast við til þess að draga markvisst úr losun gróðurhúsalofttegunda og takast á við afleiðingar loftslagsbreytinga. Þá er þeim einnig gert að tryggja umtalsvert fjármagn til grænna lausna og aðstoð við ríki sem verða verst úti í breytingum. 



Sjá einnig: Loftslagssamningur samþykktur í París

Samflokksmaður forsætisráðherra, Sigrún Magnúsdóttir umhverfisráðherra, segist einnig vera ánægð með tíðindi dagsins. „Við höfum orðið vitni að metnaðarfullu samkomulagi þennan dag 12/12, þar sem ákvarðanir hafa verið teknar um nýtt upphaf, nýja heimsmynd,“ segir Sigrún.

Sigrún Magnúsdóttir umhverfisráðherra
„Þetta eru skilaboð um breytta hegðun ríkja og einstaklinga, sem er möguleg vegna nýrrar tækni sem á eftir að þróast áfram í framtíðinni. Ég sagði áður en ég fór til Parísar að ég ætlaði að læra af öðrum - sjá og nema það sem hæst bæri í loftslagsmálum og það gekk svo sannarlega eftir.

Það var ógleymanlegt að skynja þá miklu hugarfarsbreytingu sem er að verða á öllum vígstöðvum; hjá stjórnvöldum, atvinnulífi og einstaklingum og taka þátt í gerð þessa tímamótasamnings sem verður án efa til hagsbóta fyrir mannkynið. Ísland setti sig í flokk ríkja sem vildu ná háu metnaðarstigi á lokaspretti samningsins og þær áherslur sem þar voru settar fram náðust inn. Þetta sýnir að það skiptir engu hvort ríki eru stór eða smá - við erum öll undir sama þakinu,“ er ennfremur haft eftir henni í tilkynningu.

Varða á lengri leið 

Utanríkisráðherra er sama sinnis. „Það er mikið fagnaðarefni að samkomulag hafi náðst og nú skiptir verulegu máli að efndir fylgi orðum," segir Gunnar Bragi Sveinsson.

 „Parísarsamkomulagið er varða á lengri leið. Þá var einkar ánægjulegt að verða vitni að þeirri vitundarvakningu sem er að verða um þau mál sem Ísland hefur sett á oddinn; um viðtæk áhrif loftslagshlýnunar á norðurslóðum og nauðsyn þess að efla hlut endurnýjanlegrar orku til að draga úr útblæstri. Við fundum það vel í París að ríki, fyrirtæki og almenningur um allan heim eru að vakna til vitundar um að aðgerða er þörf og horfa meðal annars til þeirra þátta sem við höfum talað fyrir.“ 

Vísir hefur fyrr í dag reifað helstu atriði hins nýsamþykkta samkomulags. Hér má glöggva sig betur á þeim.


Tengdar fréttir

Loftslagssamningur samþykktur í París

Samningurinn sem felur í sér að hitastig jarðarinnar hækki ekki um meira en tvær gráður fyrir árið 2050 var rétt í þessu samþykktur á Loftslagsráðstefnunni í París.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×