Lífið

Paris Hilton hélt að hún væri að deyja: Tekin illa fyrir í skemmtiþætti

Stefán Árni Pálsson skrifar
Paris Hilton var í mikilli geðhræringu.
Paris Hilton var í mikilli geðhræringu.
Paris Hilton var tekinn illa fyrir í egypskum skemmtiþætti þegar flugslys var sett á svið. Þátturinn heitir Ramez Wakel el-Gaw og var Hilton sagt að hún væri á leiðinni í útsýnisflug yfir Dubai. 

Allir farþegarnir voru leikarar og settu á svið gríðarlega mikla geðshræringu þegar flugmaðurinn fór að leika sér aðeins með vélina.

Eðlilega náðist þetta allt saman á myndband og er greinilegt á því að Paris Holton heldur á tímabili að hún sé að deyja og vélin eigi eftir að hrapa.

Hér að neðan má sjá myndband af hrekknum en hann hefst fyrir alvöru þegar um 11 mínútur eru liðnar af myndbandinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×