Innlent

Par fer fram á milljónir í bætur frá ljósmyndara í Reykjavík

Birgir Olgeirsson skrifar
Ljósmyndarinn sagði manninn síðan hafa haft samband við sig í fyrra þar sem hann greindi ljósmyndaranum frá því að myndirnar væru aðgengilegar öllum og hótaði ljósmyndaranum málaferlum.
Ljósmyndarinn sagði manninn síðan hafa haft samband við sig í fyrra þar sem hann greindi ljósmyndaranum frá því að myndirnar væru aðgengilegar öllum og hótaði ljósmyndaranum málaferlum. Vísir/Getty
Par hefur farið fram á tólf milljónir króna í skaðabætur frá ljósmyndastofu vegna ljósmynda sem rötuðu á netið í þeirra óþökk. Ljósmyndarinn krefst sýknu en til vara að bæturnar verði lækkaðar verulega. Aðalmeðferð í málinu fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun en upphaf málsins má rekja til október árið 2014 þegar parið fór í myndatöku hjá ljósmyndastofunni með nýfætt barn sitt. Teknar voru persónulegar og innilegar myndir af foreldrunum með barnið.

Þegar kom að því að velja ljósmyndir hafði ljósmyndarinn þann háttinn á að senda parinu tengil að ljósmyndunum á opnum vef í gegnum tölvupóst. Voru myndirnar ekki á lokaðri síðu sem þurfti aðgang að með lykilorði, líkt og parið taldi.

Myndirnar komu upp við Google-leit

Rúmu hálfu ári síðar þegar konan og maðurinn voru að leita að myndum af manninum með aðstoð myndaleitar Google komu upp óunnar myndir af fjölskyldunni úr myndatökunni á ljósmyndastofunni sem voru aðgengilegar öllum. Parinu var verulega brugðið við að uppgötva þetta en taldi það að myndirnar væru á læstri síðu. Sjálf höfðu þau valið myndir úr þessari myndatöku sem þau birtu sjálf á sínum Facebook-síðum.

Þær myndir sem þau fundu í Google-myndaleitinni voru óunnar myndir úr myndatökunni og því mikið um nekt sem þau kærðu sig ekki um og meðal annars nærgöngular myndir af konunni að gefa barni sínu brjóst.

Fann fyrir kvíða og vanlíðan

Konan lýsti fyrir dómi að þessi uppgötvun hefði komið henni algjörlega í opna skjöldu. Eftir að hún sá myndirnar á Google fékk hún að heyra frá vinum og kunningjum að þeir hefðu séð myndirnar. Það olli henni miklum kvíða og lýsti hún því að henni hafi liðið eins og allir væru búnir að sjá myndirnar og fannst óþægilegt að vera í kringum fólk.

Voru myndirnar ekki á lokaðri síðu sem þurfti aðgang að með lykilorði, líkt og parið taldi.Vísir/Getty
Fyrir dómi sagðist ljósmyndarinn hafa skýrt út fyrir parinu að það fengi myndirnar sendar í gegnum netið til að velja úr. Tölvupóstsamskiptin milli ljósmyndarans og parsins gengu þó fremur erfiðlega. Ljósmyndarinn misritaði tölvupóstfang parsins, bæði mannsins og konunnar. Einn pósturinn rataði þó rétta leið til konunnar þar sem hún gat valið úr myndir. Pósturinn þar sem hann útskýrði fyrir parinu að myndirnar væru á opnum vef rataði ekki rétta leið en ljósmyndarinnar taldi að parið gerði sér grein fyrir því að myndirnar væru ekki á lokuðum vef þar sem ekki þurfti lykilorð til að sjá þær.

Ljósmyndarinn sagði manninn síðan hafa haft samband við sig í maí í fyrra þar sem hann greindi ljósmyndaranum frá því að myndirnar væru aðgengilegar öllum og hótaði ljósmyndaranum málaferlum.

Var brugðið eftir símtalið

Ljósmyndarinn sagðist hafa verið afar brugðið og mundi lítið eftir símtalinu sjálfu þar sem honum hefði orðið svo um. Hann sagði myndavef sinn hýstan í Bandaríkjunum og hann hafi í kjölfarið eytt öllum myndum af parinu og barninu þeirra þaðan út. Hann sagðist hafa beðið parið afsökunar og það hefði aldrei verið ætlun sín að valda því skaða.

Líkt og fyrr segir fer parið fram á samtals 12 milljónir króna í miskabætur frá ljósmyndastofunni, fjórar milljónir fyrir manninn, fjórar milljónir fyrir konuna og fjórar milljónir fyrir barnið þeirra. Verjandi ljósmyndarans sagði þessar kröfurnar úr hófi en lögmaður parsins benti á að þær væru í samræmi við bætur sem voru dæmdar vegna Vodafone-lekans. Þar rötuðu textaskilaboð einstaklinga á netið og var þremur einstaklingum dæmdar samtals 2,7 milljónir króna í bætur.

Í þessu máli hafi myndir af fjölskyldunni verið birtar á netinu í óþökk þeirra og taldi lögmaður parsins að myndbirtingin væri mun meira íþyngjandi en birting textaskilaboða.

Taldi sekt ekki hafa verið sannaða

Verjandi ljósmyndarans sagði að til að sanna sekt hans þyrfti að sýna fram á ásetning eða stórkostlegt gáleysi sem hefði ekki verið gert. Þá sagði hann engin gögn hafa verið lögð fram sem varpa ljósi á miska í málinu, aðeins frásögn parsins sem sagðist hafa liðið illa. Ekki hafi verið útskýrt hvert tjónið er og hverjar afleiðingarnir hafi verið.

Að loknum munnlegum málflutningi var málið lagt fyrir dóm og má vænta niðurstöðu innan fjögurra vikna.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×