Glamour

Pantone afhjúpar lit ársins 2017

Mynd/getty
Á hverju ári afhjúpar Pantone hver litur hvers árs verður. Í fyrra varð 'Rose Quartz' og 'Serenity' fyrir valinu en það eru ljós bleikur og ljós blár. Valið vekur alltaf mikla athygli, sérstaklega vegna þess hversu oft Pantone hittir naglann á höfuðið. Ljós bleiki og blái hafa verið afar vinsælir í ár og því er ekki hægt að gera ráð fyrir öðru að litur ársins 2017 segi sömu söguna. 

Litur 2017 verður grænn samkvæmt Pantone. Réttara sagt ljós gul-grænn. Liturinn ber nafnið 'greenery' en liturinn minnir gjarnan á liti á ferskum vor laufum á trjánum. Hann er ferskur og minnir mest á nýtt upphaf og náttúruna. 

Það verður spennandi að sjá hvort að spá Pantone muni ganga eftir. 






×