Fótbolti

Pálmi Rafn tryggði Lilleström jafntefli

Anton Ingi Leifsson skrifar
Pálmi skoraði fyrir Lilleström.
Pálmi skoraði fyrir Lilleström.
Pálmi Rafn Pálmason tryggði Lilleström eitt stig gegn Álasundi í dag, en Pálmi Rafn jafnaði metin í uppbótartíma.

Álasund komst yfir með marki Sakari Mattila eftir rúman klukkutíma leik og þannig hélst staðan þangað til í uppbótartíma. Pálmi Rafn skoraði þá, en hann spilaði allan leikinn fyrir Lilleström.

Eftir leik dagsins er Lilleström í sjötta sæti deildarinnar með 24 stig, en Álasund í því þriðja með fimmtán stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×