Íslenski boltinn

Pálmi Rafn búinn að semja við KR

Pálmi kominn í röndótta búninginn.
Pálmi kominn í röndótta búninginn. vísir/vilhelm
Húsvíkingurinn Pálmi Rafn Pálmason er orðinn leikmaður KR. Hann skrifaði nú síðdegis undir þriggja ára samning við Vesturbæjarfélagið.

Pálmi Rafn kemur til félagsins frá Lilleström í Noregi. Félagið hafði mikinn áhuga á því að halda Pálma Rafni en samningur náðust ekki.

Óhætt er að segja að Pálmi hafi verið eftirsóttur hér á landi en bæði FH og Valur reyndu hvað þau gátu til þess að semja við miðjumanninn.

Þetta eru afar jákvæð tíðindi fyrir KR sem þurfti að horfa á bak Baldri Sigurðssyni á dögunum. KR fær annan fyrrverandi Völsung til þess að fylla hans skarð.

Ítarlegt viðtal kemur við Pálma á Vísi innan skamms.


Tengdar fréttir

Rúnar vill semja við Pálma Rafn

Rúnar Kristinsson, nýráðinn þjálfari, hefur beðið stjórn félagsins um að gera nýjan samning við Húsvíkinginn Pálma Rafn Pálmason.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×