Formúla 1

Palmer verður þriðji ökumaður Lotus

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Jolyon Palmer fagnar GP2 titli sínum.
Jolyon Palmer fagnar GP2 titli sínum. Vísir/Getty
Jolyon Palmer hefur verið kynntur til sögunnar sem þriðji ökumaður Lotus liðsins. Palmer varð meistari í GP2 mótaröðinni sem er næsta skref fyrir neðan Formúlu 1.

Breski ökumaðurinn mun mæta á allar 20 keppnirnar og mun fá tækifæri í „talsverðum fjölda föstudagsæfinga,“ samkvæmt Palmer sjálfum.

Palmer telur að hlutverk hans hjá Lotus sé besta leiðin til að tryggja honum keppnissæti fyrir tímabilið 2016.

„Ég er hæst ánægður með að vera kominn í F1 með Lotus F1 liðinu sem þriðji ökumaður á þessu ári og er afar þakklátur fyrir tækifærið sem liðið hefur veitt mér,“ sagði Palmer.

„Mitt markmið hefur verið að ná keppnissæti í F1 fyrir 2016 og Lotus liðið er að veita mér frábært tækifæri, sérstaklega með Mercedes vélina í ár. Að læra af stórliði í F1 með því að vinna náið með liðinu á öllum sviðum og fá að keyra mikið er besta leiðin áfram, eins og Valtteri Bottas sannaði,“ sagði Palmer.

Hinn 24 ára ökumaður varð meistari í GP2 árið 2014. Hann setti þá tvö met, annars vegar flest stig á einu tímabili (276) og flestar keppnir í röð þar sem stigasæti næst (19). Palmer hefur sett sér markmið að ná framtíðarsæti hjá Lotus.


Tengdar fréttir

Marussia bjargað á elleftu stundu?

Tekist hefur að blása lífi í vonarglæður yfirmanna Marussia liðsins um að það takist að bjarga liðini. Hætt hefur verið við loka uppboð á eignum liðsins.

20 Formúlu 1 keppnir 2015

Keppnisdagatal ársins hefur tekið breytingum keppnirnar verða 20 en ekki 21 eins og til stóð. Ekkert verður af Kóreu kappakstrinum.

Honda má eftir allt þróa sína vél

Aðrir vélaframleiðendur höfðu fengið leyfi til að þróa sína vél á komandi tímabili. Nú má Honda taka þátt í þróunarstríðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×