Innlent

Pallbíll endaði inni í garði eftir umferðaróhapp á Grensásvegi

Birgir Olgeirsson skrifar
Frá vettvangi slyssins.
Frá vettvangi slyssins. Mynd/Aðsend
Umferðaróhapp átti sér stað á Grensásvegi í Reykjavík á fimmta tímanum í dag með þeim afleiðingum að pallbíll hafnaði inni í garði við Akurgerði. Engin alvarleg slys urðu á fólki samkvæmt heimildum Vísis. Á ökumaður pallbílsins að hafa misst stjórn á bílnum á Grensásvegi með þeim afleiðingum að hann hafnaði á öðrum bíl, fór þaðan í gegnum grindverk og inn í garð við Akurgerði.

Er lögreglan enn á vettvangi.Vísir/Aðsend



Fleiri fréttir

Sjá meira


×