Innlent

Páll segir Illuga eiga að segja af sér

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Páll Magnússon telur Illuga Gunnarsson hafa orðið uppvísan að pólitískri spillingu.
Páll Magnússon telur Illuga Gunnarsson hafa orðið uppvísan að pólitískri spillingu. Vísir/GVA
Páll Magnússon, fyrrum útvarpsstjóri, telur að Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálráðherra ætti að segja af sér sem ráðherra og hætta þingmennsku vegna kaupa OG Capital á íbúð hans eftir að hann tók sæti sem menntamálaráðherra. Þetta skrifar Páll í grein í Fréttablaðinu í dag.

„Að ráðherra þiggi fjárhagslegan greiða úr hendi óskyldra aðila vegna persónulegra vandamála þarf ekki að vera spilling. Að ráðherra noti stöðu sína til að greiða fyrir viðskiptahagsmunum fyrirtækis og eiganda þess í útlöndum þarf heldur ekki að vera spilling,” skrifar hinn fyrrverandi útvarpsstjóri. Hann segir hins vegar að pólitíska spillingin felist í því að sá sem naut fyrirgreiðslu ráðherrans sé sá hinn sami og leysti úr persónulegum fjárhagsvanda hans. „Sú framganga gæti raunar tilheyrt dæmasafni í handbók um pólitískt siðleysi.”

Illugi leigir nú íbúð sína við Ránargötu af Herði Harðarsyni, stjórnarformanni Orku Energy ehf. Íbúðin, var keypt á 53,5 milljónir króna samkvæmt ársreikningi OG Capital. Samkvæmt ársreikningnum kemur einnig fram að félagið hafi tekið yfir lán að verðmæti 34,5 milljónir króna og tekið nýtt lán upp á 28 milljónir. Kaupin á íbúð Illuga virðast hafa verið einu umsvif fyrirtækisins á undanförnum árum.

„Ráðherra getur ekki notað stöðu sína sem slíkur til að greiða fyrir viðskiptahagsmunum einstaklings eða fyrirtækis sem skömmu áður hefur rétt honum fjárhagslega, persónulega, hjálparhönd. Þetta hlýtur að vera öllum ljóst, jafnvel á Íslandi. Á Vesturlöndum víkur slíkur ráðherra,” skrifar Páll.

„Fráleitust er staðhæfingin um að eldri atbeini annarra ráðherra fyrir þetta sama fyrirtæki sé sama eðlis. Það er hann ekki. Í hann vantar andlagið; þeir ráðherrar fengu ekkert í staðinn, eftir því sem best er vitað. Í því felst eðlismunurinn.”

Grein Páls í heild sinni má lesa hér í Skoðun á Vísi


Tengdar fréttir

Illugi seldi eigin félagi íbúðina

Átti OG Capital þegar hann segist hafa gert kaupsamning vegna íbúðarinnar. Félagið var svo selt stjórnarformanni Orku Energy um í lok árs 2013.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×