Páll Óskar vill að Ísland taki ekki þátt í Eurovision

Vísir Innlent 07. febrúar 2012 23:20
Páll Óskar vill að Ísland taki ekki þátt í Eurovision
mynd/anton
„Ég hef nú þegar hvatt Pál Magnússon til að afþakka þátttöku Íslands í Eurovision í Bakú. Ég vona að hann geri það og taki þessari áskorun minni. Listamaðurinn sem vinnur keppnina á laugardaginn getur líka afþakkað ferðina sjálfur ef hann vill," segir Páll Óskar Hjálmtýsson söngvari á Facebook-síðu sinni.

Ástæða þess að Páll Óskar vill að Ísland taki ekki þátt í keppninni úti í Aserbaídsjan eru fréttir þess efnis að borgaryfirvöld í Bakú, höfuðborg landsins, byggja nú glæsihýsi fyrir keppnina sem fram fer í maí, með því að reka bláfátækt fólk með valdi út úr hreysum sínum og jafna svo heimili þeirra við jörðu.

Hann segir að yfirvöld séu að brjóta á mannréttindum þegna sinna. „Afstaða mín er einföld. Ísland á að draga sig útúr Eurovision keppninni í Bakú í Aserbaídsjan. Mannréttindi í fyrsta sæti - Eurovision í öðru sæti. Það er gaman að vera glamúrös - en það er ógeðsleg tilhugsun að vera glamúrös í Kristalshöll sem er byggð á jafn ljótum grunni og með jafn viðbjóðslegri forsögu," segir Páll Óskar.

Pistil hans má lesa í heild sinni hér fyrir neðan:

LJÓTA KRISTALSHÖLLIN.

Borgaryfirvöld í Aserbaídsjan byggja núna Kristalshöll og önnur glæsihýsi fyrir Eurovision keppnina, með því að reka bláfátækt fólk með valdi útúr hreysum sínum og jafna svo heimili þeirra við jörðu. Lokað er fyrir rafmagn, gas og vatn í íbúðunum ef fólk drullar sér ekki þaðan út, því hús þeirra eru ekki lengur til í opinberum skjölum. Bæturnar sem fólkinu er boðið eru helmingi lægri en markaðvirði eigna í miðborginni, og nægja því aðeins fyrir lítilli íbúð fyrir utan borgina. Sem sagt, fátæka fólkið er neytt til að fara sem lengst burt frá Bakú. Þegar fréttamenn BBC höfðu samband við borgaryfirvöld, vildi enginn veita viðtöl um málið og strax er skellt á þau um leið og minnst var á þetta mál. Þessa frétt heyrði ég í Speglinum á Rás 1.

Hér eru borgaryfirvöld í Aserbaídsjan að brjóta klárlega á mannréttindum þegna sinna. EBU (European Broadcast Union) sem heldur keppnina, sendi frá sér lélega afsökun eða yfirlýsingu í dag. Þar ætla þau sér ekki að gera neitt sérstakt í málinu, Eurovision keppnin verður haldin í óbreyttri mynd, vegna þess að a) Eurovision hefur engar pólítskar skoðanir - er þverpólítisk keppni b) Eurovision á að vera sameiningartákn, ekki sundrungartákn c) Eurovision er svokallað „force of good" sem byggir brýr landa á milli í stað þess að brjóta þær niður. Þau vilja frekar að keppnin sé haldin í landi þar sem mannréttindi eru brotin - í þeirri von að kastljósinu verði þá frekar beitt að brotunum sem annars kæmu aldrei fram í dagsljósið. Mjög dipló og flöffí yfirlýsing.

Afsakið mig, EBU - þetta er mjög léleg afsökun fyrir því að láta mannréttidabrot viðgangast og setja engin mörk. Alger aumingjaskapur. Mannréttindabrot blómstra í þegjandi þögninni. ÞAÐ EINA SEM ILLSKA ÞARF TIL AÐ ÞRÍFAST - ER AÐ GÓÐIR MENN GERI EKKI NEITT. Eurovision hefur engar pólítískar skoðanir - en þessi viðbjóður er ekki pólítík, heldur mannréttindabrot. Það ætti að vera þver pólítísk samstaða milli þjóða um að mannréttindabrot verði aldrei liðin.
Afstaða mín er einföld. Ísland á að draga sig útúr Eurovision keppninni í Bakú í Aserbaídsjan. Mannréttindi í fyrsta sæti - Eurovision í öðru sæti. Það er gaman að vera glamúrös - en það er ógeðsleg tilhugsun að vera glamúrös í Kristalshöll sem er byggð á jafn ljótum grunni og með jafn viðbjóðslegri forsögu.

Söngvakeppni Sjónvarpsins verður haldin í Hörpu núna á laugardaginn 11. Feb. Ég á að vera kynnir þar ásamt Brynju Þorgeirsdóttur. Ég ætla að kynna þessa keppni sem Söngvakeppni Sjónvarpsins á RÚV, og ekki minnast einu orði á Aserbaídsjan. Ég vil kynna þessa keppni og standa mína plikt af virðingu við listamennina og starfsfólk RÚV sem ég hef alltaf átt gott samstarf með. Þau hafa ekkert með Aserbaídsjan að gera.

Ég ræddi við Pál Magnússon hjá RÚV í dag. Hann ræður ferðinni og getur tekið afdrifaríkar ákvarðanir. Við erum sammála um það að Söngvakeppni Sjónvarpsins og Eurovision í Bakú eru tveir ólíkir hlutir. Takið eftir því að flestar þjóðir út í Evrópu halda sínar eigin söngvakeppnir, en lögin eru ekkert endilega eyrnamerkt Eurovision. Í Svíþjóð heitir keppnin einfaldlega „Melodi-festivalen" o.s.frv. Engar reglur eru til um það hvernig þjóðirnar velja lögin sem taka þátt í Eurovision. Þjóðirnar ráða því sjálfar.

Ég hef nú þegar hvatt Pál Magnússon til að afþakka þátttöku Íslands í Eurovision í Bakú. Ég vona að hann geri það og taki þessari áskorun minni. Listamaðurinn sem vinnur keppnina á laugardaginn getur líka afþakkað ferðina sjálfur ef hann vill. Best að öllu væri ef sjónvarpsstjórar allra Norðurlandanna yrðu sammála um að fara ekki til Aserbaídsjan, og senda fulltrúa sína til að taka þátt í höll sem byggð er með yfirgangi og valdníðslu. Ekki meiri meðvirkni - við verðum að setja mörk þegar mannréttindi eru brotin, halda eigin sjálfsvirðingu og sýna fórnarlömbunum samhug í verki.

Ást og friður, PÁLL ÓSKAR

Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 25. maí. 2012 21:54

Framhaldið af Hungurleikunum komið út á íslensku

Slökkviliðsbíll var til taks þegar bóksalar sóttu framhald Hungurleikanna, Eldar kvikna, á...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 21:45

Matarolía af ökrum íslenskra bænda

Íslensk matarolía af akrinum er það nýjasta sem íslenskir bændur bjóða landsmönnum en þett...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 21:02

Mikill spenningur í Bakú - Gréta og Jónsi tilbúin

„Ég held að þetta fari þannig að Svíþjóð vinni," segir Gréta Salóme Stefánsdóttir, s...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 20:02

Jónsa og Grétu Salóme spáð 2. sæti

OGAE, eða Organisation Générale des Amateurs d l'Eurovision, er heiti á alþjóðlegum samtök...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 18:13

Hvað gerum við ef við vinnum Eurovision?

"Það er ekki til nein viðbragðsáætlun í þessu máli,“ segir Katrín Jakobsdóttir, menn...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 19:45

Catalina markaði djúp spor í flugsögu Íslands

Íslenskir flugáhugamenn fá langþráðan draum uppfylltan á Reykjavíkurflugvelli um helgina; ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 19:20

Raunhæft að ljúka viðræðunum fyrir kosningar

Stefan Füle, stækkunarstjóri Evrópusambandsins, segist telja að öll spilin í aðildarviðræð...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 18:30

Lögreglumenn fóru að selja trúnaðarupplýsingar haustið 2011

Lögreglumennirnir tveir sem sérstakur saksóknari hefur kært til ríkissaksóknara vegna brot...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 17:50

Harður árekstur í Hafnarfirði

Harður tveggja bíla árekstur varð á gatnamótum Hafnarfjarðarvegar og Álftanesvegar fyrir s...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 17:34

Þriðjungur ökumanna óku of hratt

Brot 33 ökumanna voru mynduð í Langarima í Reykjavík í dag. Samkvæmt tilkynningu lögreglu ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 17:32

Kannabis í kjallara

Tvö hundruð grömm af marijúana í sölupakkningum fundust við húsleit í kjallaraíbúð í miðbo...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 16:55

Ólafur og Þóra jöfn samkvæmt nýrri könnun MMR

Nákvæmlega sami fjöldi myndi kjósa Þóru Arnórsdóttur og Ólaf Ragnar Grímsson í forsetakosn...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 16:33

Segir aðgerðirnar bitna mest á höfuðborgarsvæðinu

"Þessar aðgerðir bitna mest á höfuðborgarsvæðinu, meirihluti þeirra sem láta af störfum er...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 16:30

Safna hjólum fyrir efnaminni börn

Hjól sem standa óhreyfð inni í bílskúr geta nú öðlast nýtt líf. Barnaheill og hjólreiðakep...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 15:47

Grunaðir innbrotsþjófar úrskurðaðir í gæsluvarðhald

Tveir karlar á þrítugsaldri hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 1. júní að kröfu lö...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 15:39

Hlakkar til að hefja störf á nýjum vettvangi

Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, segist hlakka til að hefja störf hjá OPUS lö...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 15:37

Hvetur til áhlaups á Landsbankann

Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, hvetur íbúa á Fáskrúðsfirði og Esk...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 14:21

Björn Valur: "Það er eitthvað súrt við þetta“

"Þetta slær menn,“ segir Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinstrihreyfingari...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 13:40

Krakkar í Álfhólsskóla komu færandi hendi

Hressir krakkar í 7 EJ í Álfhólsskóla í Kópavogi komu með gömul hjól og gáfu í söfnun Barn...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 13:26

Yfirlögregluþjónn kærir falsaða undirskrift á lista Ástþórs

Daníel Guðjónsson, yfirlögregluþjónn á Akureyri, hefur kært fölsun á undirskrift sinni á m...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 12:28

Segir eðlilegt að lögreglan rannsaki framboðslista

Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi hefur skilað hátt í 200 undirskriftum til viðbótar í ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 12:25

Óupplýst hver stóð á bak við stærsta fíkniefnainnflutning síðasta árs

Enn er óupplýst hverjir stóðu að innflutningi tíu kílóa af amfetamíni og rúmlega átta þúsu...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 12:23

Fangelsismálastjóri: Reynslulausn fylgja ströng skilyrði

Rúnar Bjarki Ríkharðsson, sem fékk einn þyngsta dóm sem fallið hefur hér á landi, fyrir mo...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 11:38

Geir Haarde kominn í nýja vinnu

Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur gengið til liðs við OPUS lögmenn sem r...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 11:27

Með loftbyssu og skotfæri í Leifsstöð

Karlmaður var með loftbyssu og skotfæri í fórum sínum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í fyrra...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 11:16

Borgin kaupir dráttarvélar fyrir 160 milljónir

Reykjavíkurborg áformar að kaupa dráttarvélar fyrir 160 milljónir króna á næstunni. Bréf f...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 11:10

Ákærður fyrir hættulega líkamsárás

Tuttugu og átta ára gamall karlmaður hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkam...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 10:28

Bjóða upp á nettengingu í háloftunum

Þeir sem fljúga með flugfélaginu Norwegian frá Keflavík til Osló í sumar geta verið netten...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 09:55

Fundu fíkniefni á farþega

Lögreglan á Akranesi stöðvaði í gærkvöldi bifreið sem var á ferð við bæinn. Þrír menn reyn...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 09:30

Tæplega fimm ára fangelsi í Straumsvíkurmálinu

Sævar Sverrisson, höfuðpaurinn í Straumsvíkurmáinu, var dæmdur í fjögurra og hálfs árs ósk...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 08:59

Dómur kveðinn upp í stóru fíkniefnamáli

Dómur verður kveðinn upp í einu stærsta fíkniefnamáli síðasta árs klukkan korter yfir níu ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 06:18

Ólafur Ragnar tekur forystu

Stuðningur við áframhaldandi setu Ólafs Ragnars Grímssonar í embætti forseta hefur aukist ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 08:00

Vinnuhópur meti afnám hafta

Íslensk stjórnvöld og framkvæmdastjórn Evrópu tilkynntu í gær um myndun sameiginlegs vinnu...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 07:30

Tilraun til hættulegrar árásar

Hæstiréttur staðfesti í gær dóm yfir 38 ára gömlum karlmanni, Herði Þráinssyni, fyrir fjöl...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 07:30

Tugir mála á leið til sérstaks saksóknara

Skattrannsóknarstjóri hefur sent 66 mál til sérstaks saksóknara og tugir til viðbótar eru ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 07:00

Reglur hertar vegna Annþórs og Barkar

Öryggisgangur á Litla-Hrauni verður rýmdur fyrir tvo fanga sem grunaðir eru um manndráp áð...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 06:30

Málflutningur í september

Munnlegur málflutningur í máli ESA gegn Íslandi fyrir EFTA-dómstólnum vegna Icesave hefst ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 06:00

Kosið um sameiningu í haust

Íbúar Garðabæjar og Álftaness munu greiða atkvæði um það í haust hvort sameina eigi sveita...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 06:00

Hefta vind og binda kolefni

Vísbendingar eru um að aukinn trjágróður og byggð innan borgarmarka Reykjavíkur hafi dregi...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 06:00

Herferðin kom til af nauðsyn

Lækkun á veiðigjaldi frá því sem nú er í frumvarpi ríkisstjórnarinnar skiptir ekki máli. F...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 05:30

Brjóstabollan gaf 1,5 milljónir

Landssamband bakarameistara, LABAK, safnaði 1,5 milljónum króna til styrktar grunnrannsókn...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 05:30

Boðar skoðun á innra skipulagi embættisins

Verklagsreglur hjá sérstökum saksóknara verða endurskoðaðar í kjölfar þess að embættið kær...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 05:00

50 milljónir gegn glæpastarfsemi

Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis beinir þeim tilmælum til innanríkisráðherra að und...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 05:00

50 missa vinnuna í hagræðingu

Starfsmönnum Landsbanka Íslands fækkar um 50 um mánaðamótin vegna hagræðingaraðgerða. Átta...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 04:30

Sendu Samkeppniseftirliti kvörtun

Wow air hefur kært til Samkeppniseftirlitsins synjun IGS, dótturfélags Icelandair, á því a...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 04:00

Segir jafnréttismál í ólestri

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir ríkisstjórnina ekki ...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Innlent / Páll Óskar vill að Ísland taki ekki þátt í Eurovision