Lífið

Páll Óskar býðst til að taka við Snapchat-inu hjá aðdáendum sínum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Skemmtilegt verkefni hjá Palla.
Skemmtilegt verkefni hjá Palla.
Tónlistarmaðurinn Páll Óskar Hjálmtýsson býðir aðdáendum sínum þjónustu sína á Snapchat.

Palli kemur inn á þetta í myndbandi á Facebook-síðu sinni en þar viðurkennir hann að vera kannski ekki sterkasti Snappari landsins.

Hann biðlar til fólks að senda sé notendanafnið þeirra og lykilorð á Snapchat og hann muni í framhaldinu taka yfir þeirra Snapchat-reikningi. Það gæti orðið fróðlegt að fylgjast með þessu og spurning hvort þetta sé aðferðin til að hrúga inn fylgjendum.

Nú þegar hefur Páll fengið um þrjú hundruð umsóknir frá Íslendingum sem vilja að hann taki við Snapchatinu þeirra. Hann mun í framhaldinu velja nokkra aðila sem fá hans þjónustu. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×