Körfubolti

Páll Axel tekur við Grindvíkingum | Kvarta yfir bjánalegum fréttum um liðið

Stefán Árni Pálsson skrifar
Páll Axel lék í mörg ár með Grindavík.
Páll Axel lék í mörg ár með Grindavík.
Bjarni Magnússon neyðist til að hætta með kvennalið Grindavíkur vegna veikinda og mun Páll Axel Vilbergsson taka við liðinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá körfuknattleiksdeild Grindavíkur.

Þar segir að Bjarni hafi veikst rétt fyrir jól og hafi deildin ákveðið í samráði við Bjarna að bíða út janúar í von um að hann myndi braggast. Það gekk ekki eftir og mun Páll Axel því stýra liðinu út tímabilið.

Í yfirlýsingunni segir einnig að bjánalegar fréttir hafi birst í íslenskum miðlum um kvennalið Grindavíkur. Ekki kemur fram í yfirlýsingunni um hvað fréttirnar snérust en félagið hefur til að mynda verið gagnrýnt fyrir ör þjálfaraskipti hjá kvennaliðinu.

Hér að neðan má sjá yfirlýsinguna í heild sinni:




Fleiri fréttir

Sjá meira


×