Körfubolti

Pálína fer í Hólminn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Pálína í leik gegn Snæfelli á síðustu leiktíð.
Pálína í leik gegn Snæfelli á síðustu leiktíð. vísir/stefán
Kvennalið Hauka í körfuknattleik varð fyrir enn einni blóðtökunni í dag er Pálína Gunnlaugsdóttir ákvað að semja við Snæfell.

Haukar verða einnig án Helenu Sverrisdóttur á næstu leiktíð þar sem hún er ólétt. Fleiri leikmenn eru einnig farnir frá liðinu.

Pálína skrifar undir eins árs samning við Íslandsmeistarana í Hólminum. „Ég er mjög spennt fyrir komandi tímabili,“ segir Pálína í samtali við Vísi.

Snæfell lagði Hauka í úrslitarimmunni á síðustu leiktíð og ljóst að stúlkurnar í Hólminum eru aftur líklegar til afreka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×