Enski boltinn

Palace enn ósigrað undir stjórn Warnock

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Crystal Palace vann sinn fyrsta leik á tímabilinu er liðið hélt til Goodison Park og vann góðan 3-2 sigur á Everton.

Everton hefur nú ekki unnið síðustu fjóra leiki sína á heimavelli en komst þó yfir með marki Romelu Lukaku á níundu mínútu.

En Mile Jedniak jafnaði metin úr vítaspyrnu áður en Fraizer Campbell kom gestunum yfir með skalla. Yannick Bolasie skoraði svo þriðja markið á 69. mínútu með góðu skoti.

Leighton Baines minnkaði muninn fyrir Everton úr vítspyrnu á 83. mínútu en nær komust heimamenn ekki. Bæði lið eru með fimm stig eftir fimm umferðir í 14.-15. sæti.

Neil Warnock tók við Crystal Palace þann 27. ágúst síðastliðinn og hefur liðið ekki enn tapað undir hans stjórn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×