Sport

Pacquiao þarf pening og snýr aftur í hringinn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Pacquiao mætir Jessie Vargas 5. nóvember næstkomandi.
Pacquiao mætir Jessie Vargas 5. nóvember næstkomandi. vísir/getty
Filippseyski boxarinn Manny Pacquiao snýr aftur í hringinn 5. nóvember þegar hann mætir veltivigtarmeistaranum Jessie Vargas í Las Vegas.

Hinn 37 ára gamli Pacquiao var búinn að leggja hanskana á hilluna en tók þá aftur fram því hann þarf á peningunum að halda.

Síðasti bardagi Pacquiaos var gegn Timothy Bradley 9. apríl síðastliðinn og hafði Filippseyingurinn betur á samróma dómaraákvörðun.

Pacquiao mun æfa í heimalandinu þar sem hann er þingmaður. Hann mun reyndar kynna bardagannn í Bandaríkjunum 8.-10. september en snýr aftur til Filippseyja eftir það.

Bardaginn við Vargas verður sá 67. á atvinnumannaferli Pacquiao. Hann hefur unnið 58 bardaga, gert tvö jafntefli og tapað sex, þ.á.m. fyrir Floyd Mayweather Jr. fyrir rúmu ári síðan.

Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×