Lífið

Pabbi Hafþórs Júlíusar kemur keppnisskónum til Kuala Lumpur

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frá vinstri: Einar, Andri, Ragnheiður Margrét og Björn Þór.
Frá vinstri: Einar, Andri, Ragnheiður Margrét og Björn Þór. Vísir
Hafþór Júlíus Björnsson þarf ekki að hafa neinar áhyggjur af því að skórnir sem hann ætlar að keppa í skili sér ekki til Kuala Lumpur þar sem keppnin Sterkasti maður heims hefst á laugardag. Björn Þór Reynisson, faðir Hafþórs, passar upp á skóna.

Félagarnir Andri Reyr Vignisson og Einar Magnús Ólafíuson, hörðustu stuðningsmenn Hafþórs Júlíusar og góðir vinir hans, héldu eldsnemma í morgun út í Leifstöð. Það er komið að því. Hafþór og Benedikt Magnússon hefja keppni á laugardaginn og þá ætla félagarnir að vera búnir að koma sér í stellingar fyrir keppnina og styðja sína menn.

Andri og Einar hittu Ragnheiði Margréti Júlíusdóttur, móður Hafþórs, og Björn Þór, föður hans, í Leifsstöð í morgun og hafa verið í samfloti síðan.

Andri Reyr og Einar Magnús klárir í slaginn í Leifsstöð eldsnemma í morgun.Vísir
„Það er mikil gleði á meðal okkar þrátt fyrir að töskurnar okkar allra hafi misfarist um stund hér í Stokkhólmi,“ segir Andri Reyr við Vísi. Þjónustudaman hjá Quatar Air hafi bjargað málunum og töskurnar hafi verið sendar áfram til Kuala Lumpur.

„Það er því engin hætta á að keppnisskórnir hans Hafþórs skili sér ekki,“ segir Andri en faðir Björn Þórs ber ábyrgð á skónum. Hafþór hafnaði sem kunnugt er í öðru sæti í keppninni í fyrra, hálfu stigi á eftir sigurvegaranum. Hann ætlar sér sigur og hafa félagar hans mikla trú á honum. Svo mikla að Einar er nú þegar búinn að skella húðflúri af Hafþóri á kálfann á sér eins og Vísir fjallaði um í gær.

Foreldrar Hafþórs, Andri og Einar skelltu í sig sænskum kjötbollum í Stokkhólmi áður en för hélt áfram til Doha í Katar. Lokaáfangastaðurinn er svo Kuala Lumpur á laugardaginn þar sem riðlakeppnin hefst.

Andri Reyr Vignisson og Einar Magnús Ólafíuson verða augu og eyru Vísis í Kuala Lumpur. Fylgist vel með umfjöllun Vísis um keppnina Sterkasti maður heims 2015.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×