Golf

Óvíst með þátttöku Tiger Woods á Masters

Begay og Woods eru nágrannar og góðir vinir.
Begay og Woods eru nágrannar og góðir vinir. vísir/Getty
Bandaríski kylfingurinn Notah Begay segir að það sé langt í frá öruggt að Tiger Woods verði með á Masters mótinu sem hefst eftir tvær vikur.

Begay er einn besti vinur Woods en hann vinnur einnig sem fréttamaður og lýsandi á Golf channel og þekkir því vel til aðstæðna þessa fyrrum besta kylfings heims, sem tók sér frí frá golfi snemma í febrúar eftir hræðilega byrjun á árinu.

Ég myndi segja að það séu svona helmingslíkur á því að hann verði með á Masters,“ sagði Begay í útvarpsviðtali við 120 Sports miðilinn.

Fyrir nokkrum vikum hefði ég nánast geta fullyrt að Woods yrði ekki meðal þátttakenda en hann hefur verið að ná miklum framförum undanfarið. Ég held að hann muni ekki snúa til baka fyrr en hann er viss um að geta barist við þá bestu aftur.“

Woods sleppti því að spila á Arnold Palmer Invitational sem fór fram um síðustu helgi en margir bjuggust við því að hann myndi mæta til leiks þar, enda hefur hann sigrað á mótinu átta sinnum á ferlinum .

Hann hefur frest til föstudags til þess að skrá sig til leiks á Shell Houston Open sem fram fer í næstu viku sem er síðasta mótið á PGA-mótaröðinni áður en Masters hefst þann 9. apríl.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×