Óvíst hvort Jónas verji titilinn 30. nóvember 2006 14:30 Logi Bergmann. Undirbúningur fyrir spurningaþáttinn Meistarinn er í fullum gangi.
Spurningaþátturinn Meistarinn sem sló eftirminnilega í gegn fyrr á árinu verður aftur á dagskrá þegar nýtt ár er runnið upp. Þetta staðfesti spyrillinn Logi Bergman Eiðsson í samtali við Fréttablaðið. „Við höfum verið að ákveða nákvæma dagsetningu en ég reikna með að allt fari á fullt í janúar," segir Logi og því geta spurningakeppnisóðir Íslendingar farið að undirbúa sig af krafti enda til mikils að vinna, fimm milljónir. Líkt og síðast verður þjóðþekktum einstaklingum boðin þátttaka í þættinum og segir Logi að þeir hafi lagt höfuðið í bleyti um hverjir fá hið eftirsótta boðskort auk þess sem inntökupróf verði haldin fyrir almenning. „Þetta verður mjög svipað form og síðast og það verður forvitnilegt að sjá hverjir koma aftur," segir Logi en þeir fjórir sem komust í undanúrslitin fá sjálfkrafa þátttökurétt. Þegar Fréttablaðið hafði upp á fyrsta Meistaranum, hinum unga verkfræðinema Jónasi Erni Helgasyni, hafði hann ekki tekið neina ákvörðun um hvort hann hyggðist verja titilinn. Jónas hafði sigur gegn Ingu Dóru Ingvarsdóttur í æsispennandi úrslitaviðureign og fór hann heim með fimm milljónir í beinhörðum peningum. „Ég hef ekki ákveðið neitt, er reyndar ekkert viss um það gerist þótt það yrði óneitanlega spennandi," segir Jónas. „Ég vil í það minnsta ekki þverneita fyrir það," bætir Meistarinn við. Jónas viðurkennir að hafa eytt peningunum misgáfulega, hann hafi ferðast en stærsti hluti vinningsupphæðarinnar var lögð inn á bók þar sem hún ávaxtast hægt og örugglega. Inga Dóra Ingvarsdóttir sagðist ekki eiga harma að hefna þegar Fréttablaðið náði tali af henni en hún starfar hjá Héraðsdómi Reykjavíkur. „Ég ligg hins vegar undir feldi og er að bræða það með mér hvort ég taki aftur þátt," segir hún. „Hef ekki tekið neina ákvörðun um það," bætir hún við en viðurkenndi að óneitanlega yrði það áhugavert. Jónas Örn hefur ekki tekið ákvörðun um hvort hann ætli sér að verja titilinn. . Inga Dóra. Segist liggja undir feld og bræði það með sér hvort hún ætli að taka aftur þátt. .
Menning Mest lesið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Rassaumhirða karla í sókn Lífið Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Lífið Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Fleiri fréttir Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ Sjá meira