Erlent

Óvíst hvar sautján ebólusjúklingar eru niðurkomnir

Bjarki Ármannsson skrifar
Frá Monróvíu.
Frá Monróvíu. Vísir/AFP
Óvíst er um afdrif sautján ebólusjúklinga sem hurfu er múgur réðst á einangrunarstöð í Monróvíu, höfuðborg Líberíu, í gærkvöldi.

Alls voru 29 sjúklingar í sóttkví í stöðinni. Að því er BBC greinir frá, segja heilbrigðisyfirvöld þar í landi að allir sjúklingarnir sem voru í sóttkví hafi verið færðir til annarrar heilbrigðisstofnunar. Hinsvegar segir fréttamaður Buzzfeed á staðnum að sautján þessara sjúklinga hafi sloppið í uppþotinu og að aðrir tíu hafi verið numdir á brott af ættingjum sínum.

Árásin á einangrunarstöðina er sögð vera stórt skref aftur á bak í baráttunni við ebóluveiruna, sem þegar hefur grandað rúmlega 400 manns í Líberíu. Tolbert Nyenswah, aðstoðarheilbrigðisráðherra landsins, segir að atlaga hafi verið gerð að einangrunarstöðinni vegna þess að almenningur sá óánægður að sýktir einstaklingar væru fluttir í hverfið annars staðar að úr borginni.

Sjónarvottar sem BBC ræddi við sögðu hinsvegar múginn hafa haldið því fram að ebóla væri eintóm blekking og að loka ætti stöðinni. Árásarmennirnir, að mestu leyti ungir menn vopnaðir kylfum, hafi hrópað „það er engin ebóla“ ásamt móðgunum og fúkyrðum í garð Ellen Johnson Sirleaf forseta.


Tengdar fréttir

Ebóla berst til Nígeríu

Stjórnvöld í Nígeríu hafa staðfest að líberskur maður hefði látist úr Ebóluveiru þar í landi, fjölmennasta ríki í Afríku.

Ebóla heldur áfram að breiðast út

Tveir hafa nú greinst á skömmum tíma með ebólu í Nígeríu, fjölmennasta ríki í Afríku. Annar þeirra lést í síðustu viku og er læknir hans nú sýktur af þessari mannskæðu veiru.

Meira en þúsund manns hafa látið lífið

Einungis tveir Bandaríkjamenn og einn Spánverji hafa til þessa fengið að njóta góðs af lyfjum. Afríkubúar hafa hins vegar enn engin lyf fengið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×