Innlent

Óvissa um framtíð mýrarboltans á Ísafirði

Jóhann Óli eiðsson skrifar
Það verða allir drullugir á Evrópumeistaramótinu í mýrarbolta.
Það verða allir drullugir á Evrópumeistaramótinu í mýrarbolta. vísir/vilhelm
Sú staða gæti komið upp að Evrópumótið í mýrarbolta á Ísafirði fari ekki fram á næsta ári en fyrir bæjarráði Ísafjarðarbæjar liggur tillaga þess efni að strandblaksvöllur rísi á þeim stað sem mýrarboltavöllurinn hefur staðið. 

Þann 7. ágúst síðastliðinn barst bæjarstjórn umsókn um framkvæmdaleyfi  til að reisa strandblaksvöll skammt frá tjaldsvæðinu í Tungudal. Skipulags- og mannvirkjanefnd lagði til að leyfið verði veitt þegar samningur bæjarins við Mýrarboltafélagið rennur út en það gerist um næstu mánaðamót. Bæjarráð tók erindið fyrir á fundi sínum á mánudag og hefur beðið aðstandendur hátíðarinnar um að skila greinargerð áður en ákvörðun verður tekin.

Vilja ekki úthýsa neinum sé hjá því komist

„Við viljum síður fara gegn vilja Mýrarboltamanna,“ segir Sigurður Hreinsson, formaður skipulags- og mannvirkjanefndar og bæjarfulltrúi Í-listans, í samtali við Vísi. Hann segir að það sé klárt að engar framkvæmdir hefjist nema leyfi fáist fyrir þeim og það verði ekki gert meðan samningurinn sé enn í gildi. 

„Við teljum að það sé pláss fyrir mikinn fjölbreytileika í bænum og viljum helst ekki úthýsa neinum sé hjá því komist.“

Jóhann Bæring Gunnarsson er aðalritari Mýrarboltans. Hann segir að hann, ásamt öðrum aðstandendum hátíðarinnar, fagni allri uppbyggingu íþróttamannvirkja í bæjarfélaginu.

Engin loforð um Mýrarbolta á næsta ári

„Við munum svara bænum en það er morgun ljóst að ef það rís blakvöllur þarna þá verður Evrópumótið í mýrarbolta ekki haldið oftar í Tungudal,“ segir Jóhann Bæring. Hann segir Mýrarboltafélagið vera tilbúið til viðræðna um nýja staðsetningu vallarins en enn hafi ekkert komið í ljós.

„Frá því að mótið hófst höfum við aldrei lofað því að það mótið verði haldið aftur að ári og árið í ár er ekkert öðruvísi. Hingað til hef ég ekki skynjað það að verið sé að segja okkur að drulla okkur í burtu heldur frekar að vinna með okkur að því að finna annan drullugóðan stað. Það er þó ekkert öruggt í því frekar en öðru. Við munum allavega skila inn umsögninni og sjá svo til hvað gerist,“ segir Jóhann Bæring.

Evrópumeistaramótið fór fram um verslunarmannahelgina í ár og var það í tólfta sinn. Gestum hefur fjölgað ár frá ári og eru meira að segja dæmi þess að fólk komi erlendis frá til að taka þátt. Hér að neðan má sjá myndir frá mótinu í ár. Mótið var fyrr á árinu valið sem önnur skrítnasta leiðin til að leika knattspyrnu af síðunni Copa90. Hér að neðan má sjá myndir frá hátíðinni í ár.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×