Handbolti

Óvissa með Alexander fyrir Serbíu-leikinn

Alexander er tæpur vegna meiðsla.
Alexander er tæpur vegna meiðsla. vísir/vilhelm
Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari hefur neyðst til þess að kalla á nýjan mann í landsliðshópinn fyrir leikinn gegn Serbíu.

Hann er búinn að kalla á hornamanninn Guðmund Árna Ólafsson sem að leikur með Mors-Thy í Danmörku.

Þetta er þjálfarinn að gera þar sem það er óvissa með þáttöku Alexanders Petersson í leiknum en hann er að glíma við meiðsli.

Það væri mikil blóðtaka fyrir Ísland ef Alexander getur ekki spilað þennan mikilvæga leik.

Leikurinn fer fram í Laugardalshöll á miðvikudagskvöldið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×