Bílar

Óvenjulegt bílastæði

Finnur Thorlacius skrifar
Líklegt má telja að meiningin hafi ekki verið að leggja þessum bíl þarna, en almennt teljast húsþök ekki góð bílastæði. Hinn óheppni ökumaður þessa Honda CR-V bíls í Taizhou í Kína hafði örugglega í huga að enda bílferð sína annarsstaðar en á þaki þessa húss.

Það sem olli veru bílsins á þessum óvenjulega stað, eftir útskýringum ökumannsins, var aðkomandi bíll sem hann þurfti að sveigja fyrir. Með því missti hann stjórn á eigin bíl sem fyrir vikið endaði á þessum óvenjulega stað. Ökumanninum varð ekki meint af en það þurfti stiga til að koma honum ofan af þakinu.

Það þurfti svo stóran krana til að koma bílnum ofan af þaki hússins, en allt sést þetta best með því að smella á myndskeiðið hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×