Tónlist

Óvenju hress smellur kominn út frá Moses

Gunnar Leó Pálsson skrifar
„Við höfum ekki verið þekktir fyrir það að vera neitt of hressir en nýja lagið er samt mjög hresst,“ segir Magnús Trygvason Eliassen, trommuleikari hljómsveitarinnar Moses Hightower. Sveitin sendir í dag frá sér fyrsta smáskífulagið af væntanlegri plötu sveitarinnar en lagið ber nafnið Snefill.

Moses Hightower hefur að undanförnu unnið af kappi í hljóðveri við að hljóðrita nýja plötu en gert er ráð fyrir að hún komi út í haust. „Það eru einhver þrjú eða fjögur lög svo gott sem tilbúin en við ætlum að reyna að klára allar upptökur í ágúst eða september,“ svarar Magnús spurður út í nýju plötuna.

Allir meðlimir sveitarinnar eru einnig önnum kafnir í öðrum verkefnum og því oft erfitt að koma mönnum saman. „Við ætlum okkur samt að reyna að spila svolítið í lok sumars. Það er gaman að geta komið út lagi á þriggja ára fresti,“ bætir Magnús við og hlær.

Fyrir hefur hljómsveitin gefið út tvær breiðskífur, Búum til börn árið 2010 og Aðra Mósebók árið 2012. „Við erum svo sannarlega að bregða aðeins út af vananum í nýja efninu. Þetta nýja efni er svolítið hresst. Ég er allavega að fíla þetta,“ segir Magnús léttur í lundu. Hægt verður að nálgast lagið á helstu tónlistarveitum internetsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×