Innlent

Óveður í Öræfasveit og við Hvalsnes

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
vísir/anton brink
Vegagerðin varar við sterkum vindhviðum í Öræfasveit og við Hvalsnes - allt að 35 metrum á sekúndu til klukkan sex í dag.

Hálkublettir eru á Steingrímsfjarðarheiði og Dynjandisheiði en hálka á Hrafnseyrarheiði. Einnig eru hálkublettir á Dettifossvegi og þæfingsfærð á Hellisheiði eystri.

Þá eru Hvalfjarðargöngin lokuð um helgina vegna malbikunar til klukkan sex að morgni mánudags.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×