Viðskipti innlent

Óveður hafði áhrif á afkomu VÍS

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Sigrún Ragna Ólafsdóttir er forstjóri VÍS.
Sigrún Ragna Ólafsdóttir er forstjóri VÍS. vísir/vilhelm.
Afkoma Vátryggingafélags Íslands á fyrsta ársfjórðungi ársins var umfram væntingar og skýrist aðallega af mjög góðri ávöxtun af fjárfestingaeignum félagsins á tímabilinu, en hún nam 3,2%.

„Afkoma VÍS af vátryggingastarfsemi var ágæt ef litið er framhjá áhrifum óveðursins þann 14. mars síðast liðinn,“ segir Sigrún Ragna Ólafsdóttir, forstjóri Vátryggingafélags Íslands.

Árshlutauppgjör fyrir fyrsta fjórðung var kynnt í dag.

• Hagnaður tímabilsins eftir skatta nam 733 milljónum króna samanborið við 14 milljóna króna tap fyrir sama tímabil árið 2014.

• Fjármunatekjur námu 1.113 milljónum króna samanborið við 171 milljón króna fyrir sama tímabil í fyrra.

• Iðgjöld tímabilsins námu 3.959 milljónum króna samanborið við 3.861 milljónir króna sama tímabil í fyrra og nemur hækkunin 2,6%.

• Bókfærð tjón vegna óveðurs þann 14. mars síðastliðinn námu rúmum 240 milljónum króna.

• Framlegð af vátryggingarekstri var neikvæð um 165 milljónir króna. Framlegð af vátryggingarekstri á sama tímabili í fyrra var neikvæð um 66 milljónir króna.

Sigrún Ragna segir að óveðrið hafi valdið talsverðu tjóni hjá landsmönnum og í lok mars höfðu ríflega 500 tjón verið tilkynnt til félagsins vegna þess og bókfærð tjón komin yfir 240 milljónir króna. „Þetta er mesta tjón sem orðið hefur í einu óveðri hjá félaginu síðan febrúar 1991, en í desember 2007 voru þrjú óveður sem ollu til samans svipuðu tjóni,“ segir Sigrún Ragna.

Samsett hlutfall var 105,2% á tímabilinu og telur óveðrið í mars rúm 6% í hlutfallinu. Til samanburðar var samsett hlutfall 102,9% fyrir sama tímabil árið 2014. Rekstrarkostnaður hefur farið lækkandi eða um sem nemur 2,5% frá sama tíma í fyrra. Kostnaðarhlutfall lækkaði úr 22,7% á fyrsta fjórðungi 2014 í 21,5% nú.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×