Körfubolti

Óvæntur sigur Fjölnis á Keflavík

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Arnþór Freyr Guðmundsson skoraði 22 stig fyrir Fjölni í kvöld.
Arnþór Freyr Guðmundsson skoraði 22 stig fyrir Fjölni í kvöld. Vísir/Ernir
Fjölnir vann í kvöld óvæntan sigur á Keflavík, 93-81, í Domino's-deild karla í körfubolta.

Jafnræði var með liðunum framan af þar til að Fjölnir komst yfir undir lok þriðja leikhluta. Heimamenn létu hana ekki af hendi eftir það þó svo að Keflvíkingar hafi ekki verið langt undan.

Fjölnismenn gáfu þá í, leiddu allan fjórða leikhluta og tryggðu sér þannig sætan sigur. Daron Lee Sims fór mikinn í liði Fjölnis og skoraði 31 stig auk þess sem hann tók átta fráköst. Arnþór Freyr Guðmundsson kom næstur með 22 stig.

William Thomas Graves var langstigahæstur í liði Keflavíkur með 39 stig en Valur Orri Valsson kom næstur með fimmtán. Gunnar Einarsson spilaði í kvöld og skoraði sjö stig en Damon Johnson er enn frá vegna meiðsla.

Fjölnir er enn í ellefta sæti deildarinnar með fjögur stig en Keflavík er í fimmta sætinu með átta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×