Lífið

Óvæntur gestur húkkaði sér far með togara

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Sel skolaði upp á dekk á togaranum Jóni Kjartanssyni SU 111 í kolmunaveiði togarans undan ströndum Færeyja í dag. Í samtali við Vísi segir Rögnvar Grétarsson sjómaður að skipið hafi verið á leið heim þegar skipverjar uppgötvuðu árla dags að sel hafi skolað upp á þilfar.

Eins og sjá má í myndbandinu hér að ofan tóku skipverjar selnum fagnandi og fékk hann heitið Axel. Axel hélt með skipinu áleiðis til Eskifjarðar, þar sem skipverjar treystu sér loksins til þess að aðstoða hann útbyrðis, en mikill sjógangur var á dekkinu þar til komið var inn í fjörðinn.

Sagðist Rögnvar vona að Axel væri við góða heilsu eftir ferðalagið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×