Enski boltinn

Óvænt úrslit í enska bikarnum | Chelsea og Man City bæði úr leik

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Patrick Bamford kemur Boro yfir gegn Man City.
Patrick Bamford kemur Boro yfir gegn Man City. vísir/getty
Það gerðust heldur betur óvæntir hlutir í ensku bikarkeppninni í dag en tvö efstu lið ensku úrvalsdeildarinnar, Chelsea og Manchester City, féllu úr gegn neðri deildar liðum.

Gary Cahill og Ramires komu Chelsea í 2-0 eftir 37 mínútna leik gegn C-deildarliði Bradford á Stamford Brigde og svo virtist sem lærisveinar Josés Mourinho væru á leið í 5. umferðina. En Bradford minnkaði muninn í 1-2 fyrir hálfleik og tryggði sér svo ótrúlegan sigur með þremur mörkum á síðustu 16 mínútum leiksins.

Middlesbrough gerði sér lítið fyrir og sló Englandsmeistara Manchester City úr leik með 0-2 sigri á Etihad Stadium.

Patrick Bamford kom Boro yfir eftir sjö mínútna leik í seinni hálfleik. Markið, sem er í skrautlegri kantinum, má sjá í spilaranum hér að neðan sem og seinna mark Boro sem varamaðurinn Kike skoraði á lokamínútunni.

Það var mikið fjör í fyrri hálfleik í leik Southampton og Crystal Palace á St Mary's Stadium en alls voru skoruð fimm mörk í hálfleiknum.

Graziano Pellè kom Southampton yfir á 8. mínútu en Maraoune Chamakh jafnaði tveimur mínútum síðar.

Dýrlingarnir komust aftur yfir með sjálfsmarki Scotts Dann en Yaya Sanogo, lánsmaður frá Arsenal, og Chamakh komu Palace í 2-3 áður en flautað var til hálfleiks. Fleiri urðu mörkin ekki og lærisveinar Alans Pardew eru komnir í 5. umferðina.

Leicester City vann dramatískan sigur, 1-2, á Tottenham í úrvalsdeildarslag á White Hart Lane.

Andros Townsend kom Spurs yfir úr vítaspyrnu á 18. mínútu og þannig var staðan fram á 83. mínútu þegar Argentínumaðurinn Leandro Ulloa jafnaði metin. Það var svo Jeffrey Schlupp sem tryggði Leicester farseðilinn í 5. umferðina með marki á lokamínútunni.

Victor Anichebe var hetja West Brom gegn B-deildarliði Birmingham á St Andrew's.

Nígeríumaðurinn skoraði bæði mörk West Brom með tíu mínútna millibili í fyrri hálfleik. Jonathan Grounds minnkaði muninn á 45. mínútu en nær komust heimamenn ekki.  

Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn þegar Cardiff tapaði fyrir Reading, 1-2, á heimavelli.

Úrslit dagsins í ensku bikarkeppninni:

Blackburn 3-1 Swansea

Birmingham West Brom

Cardiff 1-1 Reading

Chelsea 2-4 Bradford

Derby 2-0 Chesterfield

Man City 0-2 Middlesbrough

Preston 1-1 Sheffield United

Southampton 2-3 Crystal Palace

Sunderland 0-0 Fulham

Tottenham 1-2 Leicester

Man City 0-1 Middlesbrough Man City 0-2 Middlesbrough



Fleiri fréttir

Sjá meira


×