Sport

Óvænt tap Brady og félaga í Miami

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jordan Phillips reynir að verjast sendingu frá Tom Brady í leiknum.
Jordan Phillips reynir að verjast sendingu frá Tom Brady í leiknum. Vísir/Getty
Meistararnir í New England Patriots máttu þola óvænt tap fyrir Miami Dolphins í NFL-deildinni í nótt, 27-20.

Tom Brady, sem hefur verið magnaður á tímabilinu, var langt frá sínu besta að þessu sinni. Hann kláraði aðeins 24 af 43 sendingum sínum, kastaði samtals 233 jarda og skoraði eitt snertimark. Hann kastaði jafnframt boltanum tvívegis í hendur varnarmanns Miami - í bæði skiptin til Xavien Howard sem átti stórleik.

Patriots tókst enn fremur ekki að ná í endurnýjun í þriðju tilraun í ellefu tilraunum en slíkt er fáheyrt, sérstaklega hjá jafn öflugu liði og Patriots.

Smelltu hér til að sjá samantekt úr leiknum á YouTube-rás NFL-deildarinnar.

Leikstjórnandi Miami, reynsluboltinn Jay Cutler, átti hins vegar góðan leik og skoraði tvö snertimörk, í bæði skiptin með því að gefa á útherjann Jarvis Landry. Hlauparinn Kenyan Drake átti stórleik en hann var með tæpa 200 jarda samtals í leiknum.

Miami náði forystunni snemma í leiknum og lét hana ekki af hendi. Patriots náði að minnka muninn í tíu stig þegar þrettán mínútur voru eftir. Gestunum tókst ekki að skora snertimark á lokamínútum leiksins og þar við sat.

Miklu munaði um að innherjinn Rob Gronkowski var í banni í leiknum en hann snýr aftur á sunnudagskvöld, er Patriots mætir Pittsburgh Steelers í uppgjöri tveggja bestu liða Ameríkudeildarinnar.

Sjá einnig:Dýrkeyptur sigur arnanna

Steelers er þegar öruggt með sigur í norðurriðli deildarinnar en tryggir sér heimavallarrétt út úrslitakeppnina með sigri á Patriots á sunnudag. Það er því gríðarlega mikið í húfi fyrir bæði lið í þeim leik.

Viðureign Patriots og Steelers verður sýnd í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport klukkan 21.25 á sunnudag. Klukkan 18.00 verður leikur Green Bay Packers og Carolina Panthers sýndur en ágætar líkur eru á því að Aaron Rodgers, leikstjórnandi Packers, snúi aftur eftir að hafa viðbeinsbrotnað fyrr á tímabilinu.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×